21.4.13

Ítalía - norður og suður

Þótt Ítalía sé eitt land þá er munurinn á suður-Ítalíu og norður-Ítalíu meiri en fólk gæti ímyndað sér.

Þann 7. apríl fékk ég það tækifæri að skoða Ítalíu nánar með því að velja einn stað sem mig langaði að heimsækja í viku. Eftir klukkutíma flug frá Mílanó sem er staðsett á norður-Ítalíu, var eins og ég væri komin hinum megin á hnöttin. Þó var það bara Sikiley sem ég var að heimsækja.

Sikiley er eyja alveg syðst á Ítalíu. Á kortinu hér fyrir neðan sést hvar Mílanó er (Milano, alveg nyrst) og svo Sikiley (Sicilia, eyjan við tánna á Ítalíu)

Ég fékk að búa hjá yndislegri fjölskyldu í borginni Mazara Del Vallo í heila viku. Borgin er sá hluti Ítalíu sem er nærstur Afríku og er beint á móti Túnis.
Fjölskyldan mín var vægast sagt frábær. Þar fékk ég að eiga þrjú systkini öll á mínum aldri, eina systur og tvo bræður.

Þessari viku eyddi ég með níu öðrum skiptinemum, sem eru hér á Ítalíu í ár eins og ég og koma víðsvegar að frá Ítalíu. Ég eignaðist helling af vinum frá mörgum löndum jafnt sem ég eignaðist Sikileyska vini. Veðrið var voða gott allan tímann. Við skoðuðum allt sem hægt var að skoða, fórum í ferð til Palermo sem er nokkurskonar höfuðstaður Sikileyjar, við heimsóttum mjög fallega eyju sem heitir Mozia og einn dag fórum við meira að segja á ströndina í sólbað.

 En fólkið, menningin og landslagið á suður-Ítalíu er allt annað en það sem ég er vön á norður-Ítalíu.

Í fyrsta lagi eru allir pínu litlir þarna. Mér hefur aldrei liðið svona hávaxnari áður. Ætli meðalstærð fólks þarna sé ekki um 1,50 cm að öllu gamni sleppt. En fólkið þarna er rólegt, hlýtt og gestrisið. Það var auðvelt að kynnast fólkinu og allir tóku manni opnum örmum. Aftur á móti er þetta mikið tilfinningafólk sem hikar ekkert við það að láta vita ef það er í vondu skapi eða óánægt með eitthvað, öskrar þegar því langar að öskra, grætur þegar því langar að gráta og hlær þegar það vill hlægja. Sama hvað fólkið þarna gerir þá er það engin skömm. Allar tilfinningar eru samþykktar.
Á norður Ítalíu er fólk frekar kalt í samskiptum, jafnvel kaldara en íslendingar. Hér í Mílanó finn ég ekki fyrir mikilli gestrisni eins og á veitingastöðum eða í búðum.

Jafnvel menningin er allt önnur en á norður-Ítalíu. Hún er dálítið smituð af Afrískri menningu. Þarna borða þau mikinn fisk, ávexti, auðvitað líka pasta og pizzur, og kúskús er alveg það mikilvægasta.
Á meðan við hér í Mílanó borðum mikið af hrísgrjónum en minna af fiski.

Landslagið er gullfallegt! Enda var allt í blóma þegar ég kom þar sem veðrið þarna er yfirleitt þremur vikum á undan en í norðri. Þarna var meira dreifbýli og meiri náttúra. Á norður-Ítalíu er búið mjög þétt, náttúran orðin lítil og í staðin eru hús og verksmiðjur hvert sem þú ferð.

Ég vil meina að þarna hafi ég fengið að kynnast því sem ég hafði heyrt um Ítalíu. Þarna voru stereótýpurnar ef svo má segja.

Já og umferðin! Það var nú meira. Engin bílbelti og engar umferðarreglur. Það var mikið af þröngum götum og gatnamótum en lítið af biðskyldumerkjum eða umferðarljósum. Það var nú bara þannig að áður en einhver fór yfir gatnamót þá flautaði hann dálítið vel til að láta vita af sér án þess að hægja nokkuð á sér.

Systkini mín á Sikiley!

Á leið til Mozia
Mozia

Pete, vinkona mín frá Tælandi, og ég á ströndinni.

Á leiðinni upp í flugvél til Mílanó.

Tuuli og mig langaði ekkert heim.



































































































































En áður en ég fór í skiptivikuna til Sikileyjar fór ég í smá páskaferðalag með fjölskyldunni í Mílanó. Við heimsóttum Veneto svæðið. Þar fór ég til Verona og sá hinar frægu svalir Rómeós og Júlíu. Svo fórum við til Padova og á aðra staði og skoðuðum mjög svo glæsilega gamla kastala.

Verona
Svalir Rómeós og Júlíu



Veitingastaður sem við borðuðum á.
Rosa flottur kastali! 
Ég í rosa fallegum og stórum kastalagarði.



































































Nú er sumarið loks farið að láta sjá sig. Það er búið að vera svo heitt að ég hef bara verið í stuttbuxum og hlýrabol og er búin að fá rosa mikinn lit! Get ekki ímyndað mér hvernig ég verð þegar ég kem heim, örugglega svört!

Í dag fór ég á ljósmyndasýningu með ljósmyndir frá Íslandi! Það var ótrúlega gaman. Ég fór þangað með fósturfjölskyldu minni og útskýrði allt fyrir þeim. Nú langar þau rosa að koma til Íslands.

Nú styttist bara tíminn og rúmlega tveir mánuðir í að ég komi heim. Skólinn klárast eftir rúmlega mánuð og þá tekur bara við mánaðar sumarfrí sem verður yndislegt!

Ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga það sem eftir er af dvölinni. Ég veit að ég er ekki búin að standa mig mjög vel síðustu tvo mánuði. Endilega skiljiði eftir smá komment svo ég sjái hverjir eru að lesa! Það er alltaf svo gaman!

Kveðja frá Ítalíu!

28.2.13

Að vera útlendingur

Þegar upp er staðið eru það litlu hlutirnir sem sá sem flytur í annað land þarf að venjast. Menningarmunurinn er oft meiri en maður myndi halda þar sem hann felst aðallega í öllum þessum smáu hlutum í daglegu lífi. Sá sem flytur í annað land þarf að þróa með sér ákveðið hugarfar, sem er ekki alltaf auðvelt. Þó að Ítalía sé nú í Evrópu eins og Íslandið góða, þá felst oft mikill menningarmunur í litlum hlutum.

Eins og gengur og gerist þá fá Ítalir kvef, alveg eins og við Íslendingar. Nema hvað, aldrei kemst ég í gegn um daginn minn án þess að heyra einhvern snýta sér svo hressilega að mig hryllir við því. Ítalir snýta sér daginn út og daginn inn. Hvar sem ég er og hvert sem ég fer! Himinn og jörð ferst ef einhver hefur ekki snýtibréf með sér í för hvert sem sá sami fer. Þá er lýst yfir neyðarástandi: „ER EINHVER MEÐ SNÝTIBRÉF?!“. Ég sit kannski í skólanum að læra í rólegheitunum þegar ég hrekk upp við þessi voðalegu hljóð. En íþróttatímarnir. Auðvitað lætur enginn sjá sig spila körfubolta án þess að vera með svo sem eitt snýtibréf í vasanum. En það sem fer nú alveg með mig er þegar við sitjum við matarborðið. Þá er ekkert eðlilegra en að snýta sér dálítið hressilega. Svo er snýtibréfinu og öllu sem því fylgir bara stungið í vasann og haldið áfram að borða með bestu lyst. En athuga skal að það þykir afar ósmekklegt að sjúga upp í nefið. „Hættu að sjúga upp í nefið og snýttu þér stelpa!“ er eitthvað sem heyrist sennilega frá ófáum ítölskum mömmum.
Ítalir eru enn að nota svokallaða þérun á fullu. Ef þú talar við ókunnuga manneskju, gamalt fólk, kennara eða háttvirt fólk þá þarftu að ávarpa það í þriðju persónu auk þess að tala í formlegu máli, sem er í eitthvað svipuðu sniði og Alþingislögin eru skrifuð. Þegar maður er nýbyrjaður að skilja þá gengur það og gerist að maður fer að þýða allt úr ítölsku og yfir á sitt eigið tungumál þegar talað er. Þess vegna hljómaði alltaf í hausnum mínum í skólanum „Kennari, hafið þér búið til prófið sem okkur er ætlað að taka á mánudaginn?“ eða í matvöruverslun „Má bjóða yður poka?“. Svo er náttúrulega alveg stranglega bannað að segja „hæ“ eða „bæ“ við ókunnuga manneskju, gamalt fólk, kennara eða háttvirt fólk. Það var mjög erfitt í byrjun skólans þegar ég kunni litla sem enga ítölsku. Kennarinn má segja „hæ“ og „bæ“ við nemendur sína og má tala við þá án þess að nota þérun en nemendurnir þurfa alltaf að segja „góðan dag kennari“ og „verið þér sælir kennari“.

En hvernig er hægt að skilja þetta þegar maður er Íslendingur? Hvernig getur það þótt meiri kurteisi að snýta sér og geyma allt í vasanum? Það er kannski eitthvað sem maður á aldrei eftir að skilja ef maður hefur ekki alist upp við það. En hugarfarið sem maður þarf að tileinka sér í þessum efnum er að fyrir þeim er jafn eðlilegt að snýta sér eins og fyrir okkur Íslendinga að sjúga upp í nefið - og öfugt: fyrir þeim er jafn ógeðslegt að sjúga upp í nefið á almannafæri eins og fyrir okkur að snýta sér á almannafæri.
Með þérunina verður maður að hugsa sér að það að tala við kennara óformlega á Ítalíu er jafn asnalegt og ef einhverjum dytti í hug að nota þérun á kennara á Íslandi. Að segja „hæ“ við kennara er eins og að segja „hæ sæti“ eða „hæ sæta“ við kennara á Íslandi.
En svo ég fái nú aðeins að segja mína skoðun þá fer það ótrúlega í taugarnar á mér að fyrir fullorðnu fólki hér á Ítalíu er borin svo miklu meiri virðing heldur en fyrir ungu fólki. Þar sem ég er nú frekar réttindasinnuð í þessum málum þá getur þetta oft farið í taugarnar á mér. En ef talað er við mig í þérun, eins og út í búð eða á veitingastað, sem gerist annað slagið, þá geri ég það líka með glöðu geði og geng svo ánægð út!

En kæru lesendur. Nú fer að líða að því að ég sé búin að vera hér á Ítalíu í hálft ár, sem þýðir að það eru fjórir mánuðir eftir: þrír mánuðir eftir af skóla og svo mánaðar sumarfrí. Það er 1. mars á morgun sem ég trúi bara alls ekki. Svo er vorið er næstum alveg komið! Mikið er ég glöð. Það er farið að hlýna verulega og spáð 14 stiga hita og sól á mánudaginn næsta. Ég hef beðið lengi eftir þessu. Veturinn er búinn að vera kaldur og erfiður fyrir svona mikla kuldaskræfu eins og mig. Ég lýg því ekki að það kom fyrir þó nokkuð oft í viku þegar ég kom heim úr skólanum að ég klessti mig upp við ofninn í herberginu mínu í ullarsokkum og þykkri peysu. Oft fór ég líka svo mikið klædd undir sæng að reyna að hlýja mér. Minn aðal dvalarstaður í vetur var samt svo nálægt kamínunni að ég var heppin að það myndi ekki kvikna í mér.
Um daginn skellti ég mér í dagsferð í svissnesku Alpana með vinkonu minni frá Bólivíu. Það var virkilega gaman og væri sko ekki leiðinlegt að fara þangað aftur.










































Svo er ég búin að kaupa mér miða á tónleika með FUN. Tónleikarnir verða 11. júní og eru útitónleikar. Það verður mjög gaman held ég þar sem það verður alveg hlýtt á kvöldin í júní.
Í gær afrekaði ég það að klára annað olíumálverkið mitt!





























Annars einkennist líf mitt þessa dagana bara af kaffihúsaferðum, verslunarferðum, skóla, borða góðan mat, sofa og svo auðvitað mikilli gleði eins og alltaf! En undanfarna daga af kvefi og hálsbólgu sem er þó ekki jafn gleðilegt. En hafið ekki áhyggjur ég mun ekki taka upp á því að snýta mér í tíma og ótíma.

Smá skilaboð til pabba, Péturs Smára og afa: þó ég sé pínu abbó þá vona ég að þessi Englandsferð heppnist vel hjá ykkur. Látið svo heyra í ykkur á Old Trafford!

Ég yrði glöð að fá nokkrar athugasemdir frá ykkur kæru lesendur.
Ítalía kveður að sinni!




8.2.13

Leiðin er hálfnuð!

Ég man hvað ég var spennt þegar ég var að fara að skrifa fyrsta bloggið mitt. Það var svo gaman að segja frá öllu og allt svo spennandi. Þegar ég kom fyrst í miðbæ Mílanó vissi ég ekki einu sinni hvert ég ætti að horfa, hvernig ég ætti að snúa mér eða hvað ég ætti að vera að hugsa. Ég hafði aldrei séð neitt jafn rosalegt. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég fékk að sjá Duomo, La Galleria Vittorio Emanuele og La Scala. Erfiðast af öllu saman var samt að trúa að þetta allt saman væri byggt af mannfólkinu. Þetta eru ekki bara byggingar, þetta eru algjör listaverk.
Nú er allt orðið svo venjulegt og hversdagslegt að mér finnst ekkert vera frásögu færandi þannig séð. Það er orðið ótrúlega venjulegt að fara í ítalskan skóla, tala ítölsku allan daginn, fara í miðbæinn og sjá allar þessar rosalegu ítölsku byggingar, fara í H&M, Bershka og Kiko Milano og vera úti án þess að eiga á þeirri hættu að detta á rassinn í hálkunni eða geta ekki andað útaf of miklum vindi.

Það má í raun segja að þegar horft er yfir allan mannfjöldann í miðbænum sé hægt að skipta fólkinu í tvennt. Annars vegar fólk sem stendur og dáist af öllum bænum og er greinilega að njóta þess til hins ítrasta - og hins vegar fólk sem er ekki einu sinni að eyða tímanum sínum í að líta í kring um sig. Það er að segja ferðamenn annars vegar og íbúar borgarinnar hinsvegar.
Þó ég telji mig vera orðin ein af íbúum borgarinnar þar sem ég dáist ekki af öllu í þau mörgu skipti sem ég fer niður í miðbæ, þá er alltaf ákveðinn sjarmur við það að koma þangað og alltaf finnst mér það gaman. Alltaf þegar ég fer í miðbæinn veit ég að ég á svo sannarlega eftir að sakna Mílanó.

Ég get með sanni sagt að ég hafi verið heppin að fá það tækifæri að fara út sem skiptinemi, og enn heppnari að lenda í borg eins og Mílanó. Heppin að fá tækifæri til þess að læra annað tungumál og fá aðra sýn á heiminn. Heppin að eignast marga mjög góða vini frá löndum heimsins sem ég þarf, hvort sem ég vil trúa því eða ekki, á endanum að kveðja - og suma kannski fyrir fullt og allt.
Eftir þessa reynslu er ég vissum að ég mun ekki líta á heiminn sömu augum og áður. Enda er hann mikið minni en margt fólk þorir að trúa og við, íbúar heimsins, ekki svo ólík eftir allt saman.

Ótrúlegt en satt þá er leiðin hálfnuð. Fimm mánuðir eru liðnir og fimm eftir. Tíminn hefur liðið svo hratt undanfarna daga að mér finnst ég ekki gera annað vakna og eftir tíu mínútur er ég farin að sofa aftur.

En ef við komum okkur að hinu ítalska lífi hér þá hef ég bara verið að lifa lífinu eins og prinsessa, fara á kaffihús og út að borða með vinum mínum. Þann 21. janúar var síðasti ítölskutíminn sem ég er að taka utan skóla. Við skiptinemarnir höfum verið að taka ítölskutíma síðan við komum hingað og ákváðum að hafa smá veislu í seinasta ítölskutímanum. Allir komu með eitthvað gott að borða og ég bakaði köku.



Við allir ársskiptinemarnir í Mílanó með Önnu (ítölskukennara), Emily og Rubiu sem voru hér í tvo mánuði.




































Ég og Polasky (aka Pauline)
Þann 25. janúar fór ég út að borða með öllum skiptinemunum í Mílanó til þess að kveðja Emily frá Ástralíu. Hún var hér í tveggja mánaða prógrammi og var að fara heim.







































Loksins kláraði ég svo málverkið mitt og byrjaði á nýju.

Gamla málverkið klárað!

Byrjuð á nýja málverkinu!




Svo fór ég með skólanum mínum að sjá sýningu sem heitir Body Worlds. Þetta er sem sagt safn sem er, án gríns, að sýna alvöru líkama. Það eru sem sagt lík sem eru tekin og notuð í þessa sýningu. Þar var verið að sýna alvöru vöðva, alvöru lungu, bein og alvöru manneskjur án skinns í allskonar stellingum.

Noemi og ég á leiðinni á Body Worlds






































Það var tekin ein helgi þar sem það var bara töluð íslenska! Selma vinkona mín frá Bolzano kom í heimsókn yfir helgi. Við fórum á langþráða David Guetta tónleika sem var svaka stuð.

Selma og ég

David Guetta!







































Laugardeginum var bara eytt í að versla svo það var enginn tími til þess að taka myndir. Á sunnudeginum fórum við Selma upp í dómkirkjuna en ég hef aldrei komið þangað áður. Það var ótrúlega fallegt því þar getur maður séð yfir alla borgina. Við vorum heppnar með veður. Það var alveg heiðskýrt svo það sást líka í Alpana.






































Útsýnið úr Duomo



Sunnudagurinn var heldur ekkert leiðinlegur. Ég fór með nokkrum vinum mínum á fótboltaleik á San Siro. Þar spiluðu AC Milan á móti Udinese. Það skemmdi ekki fyrir að Balotelli var að spila sinn fyrsta leik með AC Milan, byrjaði inná og skoraði bæði mörkin í leiknum.






































Í gær kvöddum við Rubiu frá Malasíu. Hún var líka hér í tveggja mánaða prógrammi og fer á morgun heim til Malasíu. Hennar verður sárt saknað!

Ég, Marine og Pauline að vera eðlilegar.

Ákváðum að fara með Rubiu upp í Duomo því hún hafði aldrei komið þangað.

Ileana, ég, Rubia og Marine!

Fimm mánuðir með þessum!

Ég, Marine, Pauline og Rubia uppi í Duomo.





























































































































Í vikunni fékk ég það staðfest að ég fer til Sikileyjar þann 7. - 14. apríl á stað sem heitir Marsala og er víst rosa fallegur staður. Það verður heldur ekki leiðinlegt að ég er að fara þangað með góðri vinkonu minni, Pauline. Við pöntuðum flug í gær og ég get varla beðið!

Þá hef ég ekki frá meiru að segja í bili, nema það að ég ætla að halda áfram að hafa endalaust gaman og vona að þið gerið það líka.
CIAO! 




14.1.13

Roma ♥

Hér er ég, árið 2013, einu tungumáli, fullt af vinum og níu kílóum ríkari.

Árið 2012 var gott ár og ég hef það mjög á tilfinningunni að árið 2013 verði alveg ótrúlega gott ár. Núna fer þetta nú allt saman að verða hálfnað. Ég veit ekki hvort ég eigi að trúa því eða ekki. Tíminn er búinn að líða hratt en á sama tíma hægt. Hægt aðallega vegna þess að ég er búin að gera svo marga hluti, hratt vegna þess að það er búið að vera gaman.

Jólafríið var algjörlega nýtt í afslöppun, þangað til um áramótin. Þá fór ég í áramótapartý með vinum mínum. Það er samt skemmtilegast að segja frá því þegar ég gisti þar með vinum mínum. Við vorum þrjár stelpur í einu herbergi.Við fengum bara eitt pínulítið rúm sem var ekki nógu breitt til þess að við gætum legið í því þrjár þannig við sváfum þvert yfir rúmið með fæturna útfyrir. Við fengum eitt pínu lítið og þunnt teppi sem náði ekki einu sinni yfir okkur allar. Og svo ég byrji nú ekki á því hvað það var ískalt þarna inni í þessu herbergi. Ég hef bara aldrei sofið í svona slæmum aðstæðum og svaf bara ekki neitt þessa nótt. Ég fann til allstaðar í líkamanum og mér var ískalt. Ítölsku vinkonur mínar sváfu samt alveg eins og englar. Þá áttaði ég mig á því að ég væri kannski aðeins of góðu vön.

Áramótapartýið

Þann 2. - 4. janúar var ég í Róm. Róm er alveg klárlega fallegasta borg sem ég hef séð. Þar gistum við tvær nætur á mjög fínu hóteli.
Það sem er mjög skemmtilegt við Róm er það að hvert sem þú snýrð þér þá sérðu eitthvað merkilegt. Það er alveg ótrúlegt að standa í miðbænum og horfa á Colosseo, snúa sér svo og sjá Circus Maximus (eldgömul bygging frá Rómartímabilinu) og labba svo nokkur skref og sjá þá Foro Romano (gamlar leifar frá Rómartímabilinu). Ég man ekki betur en að á móti Foro Romano hafi verið einhver önnur bygging, en ég bara get engan veginn munað hvað hún heitir því það er alveg ómögulegt að leggja þetta allt saman á minnið. Fyrir mig allavega.

Colosseo


Circus Maximus










































































Foro Romano






































Það þyrfti margar margar vikur til þess að geta skoðað allt í Róm. Við vorum í þrjá daga en náðum að nýta þá mjög vel.
Daginn sem við komum fórum við á Verneer myndlistasýningu. Það var mjög fínt. Sama dag fór ég að skoða höll forsetans, fræga Trevi gosbrunnin og Pantheon.

Torgið fyrir framan höllina hjá forsetanum. Sést aðeins í Vatíkanið.





























Trevi gosbrunnurinn og ég súperhress.






































Pantheon



Annan daginn skoðaði ég Colosseo, Vatíkanið og fleira ásamt því að vera eins túristaleg og ég gæti og taka túristarútu um Róm þar sem ég sat á toppnum á rútunni með ekkert þak. Það var svo mikið af fólki í bænum, enda allir í jólafríi, að það var ekki séns að ég nennti að bíða í þriggja tíma langri biðröð eftir að komast inní Colosseo eða aðrar byggingar. Ég ákvað því bara að skoða borgina vel í staðin og þekkja allt það helsta því næst þegar ég fer til Rómar get ég skoða allt betur og vonandi haft meiri tíma.
Það var alveg mjög skrítið að sjá Colosseo. Þetta er eitthvað sem maður hefur bara séð á myndum eða í bíómyndum og einhvernveginn alltaf verið eitthvað sem manni finnst að eigi BARA að vera á myndum eða í bíómyndum. Þessvegna er svo skrítið að sjá þetta svona raunverulegt.

Colosseo






































Svo fór ég að heilsa uppá Páfann í Vatíkaninu. Þar fórum við heldur ekki inn þó mig hefði langað mjög að sjá kirkjuna, en það verður bara að bíða til betri tíma.
Fólk kemur að heimsækja Vatíkanið af tveimur ólíkum ástæðum. Ein vegna þess að fólk er að ferðast og skoða sig um í Róm, eins og ég var að gera, eða þá að fara þangað útaf trúnni. Það ferðast margir trúaðir alla leið til Ítalíu bara til þess að fara í Vatíkanið og biðja. Ég sá til dæmis marga krjúpandi fyrir framan kirkjuna á torginu og biðja. Svo voru þarna margar nunnur. Það var eitt alveg stórfurðulegt sem ég komst að um nunnur. Ég var að skoða litla kirkju seinasta daginn. Í kirkjunni voru svo læstar dyr. Þar inni eru nunnur sem eru svo trúaðar að þær gera ekki annað en að borða og biðja. Þær fara ekki út úr kirkjunni og þær tala ekki við nokkurn mann, ekki einu sinni sín á milli. Ég get nú ekki trúað öðru en þær endi með því að verða geðveikar, ef þær voru það ekki fyrir. En hvað veit ég.

Við kirkjuna í Vatíkaninu.





























Á torginu við kirkjuna í Vatíkaninu.






































Fíni gosbrunnurinn í Vatíkaninu.






































Síðasta daginn tókum við túristarútu um sveitirnar fyrir utan Róm. Eins mikil sveitastelpa og ég er naut ég sko hverrar einustu sekúndu. Svo skoðuðum við nokkrar kirkjur og löbbuðum um í þessu fína veðri sem við vorum svo ótrúlega heppin með.

Mosé gosbrunnurinn






































Við gerðum margt margt fleira og ég varð alveg ástfangin af Róm. Ég ætla að setja hérna með nokkrar myndir úr Róm en annars eru þær allar á Facebook.















































































Ég vildi samt að ég gæti verið menningarlegri og fundist virkilega gaman að fara á söfn, skoða kirkjur og fara á myndlistasýningar. En rosalega getur mér fundist það leiðinlegt. Í vikunni fór ég á risa myndlistasýningu Picasso. Allir vita hver Picasso er þannig ég hélt að það gæti nú orðið áhugavert. Ef ég á að segja satt þá var ótrúlega þreytandi að labba í tvo eða þrjá klukkutíma um 16 herbergi, hvert með tíu myndum eftir Picasso í. En það er gaman að segja að ég hafi farið. Það var eitt málverk sem mér fannst gaman að sjá, en bara vegna þess að heima á Íslandi eigum við málverkið í litlum myndaramma og ég þekkti það.






































Svo má ekki gleyma því að klukkan 8 á fyrsta degi útsalanna í Mílanó vaknaði ég og fór niður í bæ með Pauline. Það var sko ekki leiðinlegt. Enda hefur Mílanó breytt mér í kaupóða manneskju.






































Svo fékk ég yndislega jólagjöf frá bestu vinkonunum í öllum heiminum.



Ég smakkaði japanskan mat í fyrsta skipti með japönsku vinkonu minni, Marine. Fórum eitt hádegið eftir skóla á japanskan veitingastað niðri í bæ.

















Um helgina fór ég með vinum mínum á happy hour niðri í bæ því vinur minn átti afmæli. Daginn eftir var svo AFS hittingur þar sem við öll í Lombardiu hittumst.

Eftir tvo mánuði, 10. - 17. mars, verður skiptivika sem þýðir að ég get farið á annan stað á Ítalíu og verið þar í viku. Ég er að vonast til að fá að fara til Sikileyjar, syðsta part Ítalíu. Ég er búin að sækja um það og ég held að það líti allt út fyrir að ég fái að fara þangað.

Það er ekki meira að segja frá í bili, en nóg á dagskránni.
Munið bara að ég er að skrifa þetta sérstaklega fyrir ykkur og það er alltaf gaman að fá að vita hverjir hafa lesið.
Baci e abbracci til Íslandsins