18.9.12

Milano, Milano!

Fyrir 11 dögum síðan var ég í flugi á leið til Ítalíu. Nú er ég hér og eftir 292 daga verð ég í flugi á leið til Íslands. En ævintýrið heldur áfram! Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Í fyrsta lagi byrjaði ég í skólanum síðasta miðvikudag. Mér til mikillar gleði fæ ég líka að fara í skólann á laugardögum, þannig að ég fer í skólann alla daga nema sunnudaga. En það góða við skólana hérna er að ég er alltaf búin klukkan 13:10 nema á miðvikudögum, þá er ég búin klukkan 14:10. Þannig að ég á alltaf allan daginn eftir.

Herbergisglugginn minn

Skólinn er mjög fínn, en allt mjög gamaldags. Það er bannað að segja „ciao“ (hæ) við kennarann. Maður verður að segja „buongiorno“ (góðan dag). Við erum alltaf inni í sömu skólastofunni og kennararnir koma til okkar. Þegar kennarinn kemur verðum við að standa upp fyrir honum og megum setjast niður þegar hann segir að við megum setjast niður. Þetta er samt svona frekar jolly hjá flestum kennurunum. Ekki frú enskukennara samt. Í enskutíma erum við komin aftur á 19. öld. Það er bannað að tala í tímum nema fá leyfi frá kennaranum. Hún talar á ensku í tímunum og nemendurnir þurfa að tala ensku við hana. Eins og kannski flestir vita þá eru Ítalir skelfilegir í ensku. Ef einhver er lengi að segja eitthvað orð á ensku eða kann ekki að bera það rétt fram eiga allir að skrifa orðið í litlu orðabókina sem við erum með. Það er líka gaman að segja frá því að hún setti skilyrði um hvernig stílabók við ættum að kaupa til þess að nota sem orðabók. Bókin á að vera A5 með harðri kápu. Heppna ég fékk samt að velja litinn. Jæja, ef einhver segir einhverja setningu vitlaust fær sá sami A4 blað frá frúnni til þess að skrifa setninguna aftur og aftur þangað til blaðið er orðið fullt. Hún talar alveg mjög góða ensku en um daginn spurði hún mig hvort ég ætti orðabók „English - Icelandish“. Það hefði verið mjög freistandi að leiðrétta hana, Icelandic, en ég gerði það nú ekki.

Húsið mitt!
En íþróttirnar... Ég fékk að vita það daginn fyrir fyrsta íþróttatímann að það væru engar sturtur í skólanum. Ég spurði bekkjasystur mína hvort þær færu ekki í sturtu eftir íþróttir og hún sagði NEI. Hún sagði að þær færu bara í sturtu þegar þær kæmu heim. Alveg frábært þar sem ég er í íþróttum tvisvar í viku. Í þriðja tíma á mánudögum og öðrum á fimmtudögum eða eitthvað álíka. Svo fór ég í minn fyrsta íþróttatíma í gær með það í huga að ég yrði illa lyktandi allan skóladaginn. Okei, það sem við gerðum: hlaupa fimm hringi í salnum eins og við værum í keppni við skjaldböku og svo teygjur. Svoleiðis eru íþróttatímarnir hérna. Ég var svona bæði ánægð og ekki. Þá þarf ég ekkert að fara í sturtu en ég hélt að ég gæti fengið einhverja hreyfingu í skólanum, nei ég verð að fá hana annarstaðar.

Hundur systur Mariu
Við erum held ég 17 í bekknum, sex stelpur og 11 strákar. Stelpurnar eru mjög yndislegar og mér finnst ég alveg strax vera komin inn í hópinn, þó ég skilji ekki mikið. Þeim finnst gaman að tala við mig og tala þá við mig á ensku. Þær eru líka mjög duglegar að segja mér hvernig ég segi þetta og hitt á ítölsku. Sumar þeirra eru samt pínu barnalegar finnst mér. Fyrsta daginn minn komu þær til mín og hvísluðu að mér hvort mér finndist einhver strákur í bekknum sætur. Þær sögðu mér svo allt um hver væri skotinn í hverjum. Þeim finnst líka rosalega fyndið að fela skóladótið hjá strákunum. Svo eitt annað, það virðist sem ekkert sé eðlilegra en að taka upp vasaklútinn sinn og snýta sér hressilega í tímunum. Þeim finnst ógeðslegt þegar einhver sígur upp í nefið þannig að ég verð víst að fara að venja mig á vasaklútana.

Mér finnst ég vera búin að læra hellings ítölsku síðan ég kom. Ég er eiginlega frekar hissa á því hvað ég skil mikið, en samt get ég ekki ennþá talað. Ég skil samt ekkert voðalega mikið í tímum eins og náttúrufræði og stærðfræði. En ég skil ekkert frekar í íslenskum stærðfræði og náttúrufræðitímum svo þetta er allt í lagi. Svo er ég í heimspeki og ég vildi óska þess að ég gæti skilið eitthvað þá! Mig langar svo að læra heimspeki. En já, stærðfræðin er eins og geimverumál fyrir mér. Þau gætu alveg eins verið að skrifa á kínversku. 

Non capito!
En síðustu dagar eru búnir að vera mjög góðir. Á föstudaginn fór ég út að borða með familíunni. Við fórum á pizza veitingastað og löbbuðum svo um Milano þar sem þau sýndu mér dómkirkjuna Duomo, styttuna af Leonardo da Vinci og óperu leikhúsið fræga sem ég hafði ekki hugmynd um að væri einu sinni til. Svo í leiðinni sá ég Prada og Chanel! Svo fengum við okkur ís og vá! súkkulaðiísinn er geðveikt góður!!

Í miðbæ Milano!
Á laugardeginum eftir skóla fór ég með bekkjarsystrum mínum í verslunarferð þar sem mig bráðvantaði föt. Íslensk sveitaföt eru ekki kúl í Milano. 

Ele, Noemi, io, Bea, Sara e Giulia!
Um kvöldið fór ég svo með Ele, Noemi og Sara á lítið festival í litlum bæ sem heitir Opera og er hérna rétt hjá. Þar var útidanssýning þar sem Giulia var að dansa. Við fengum okkur pylsu. Hér er sett tómatsósa, majones og eitthvað grænmetisgums á pylsurnar. Það var ágætt. En það var rosalega gaman á þessu festivali.

Ele, ég og Noemi

Markaðir

Noemi, Giulia og Sara að dansa!

Giulia að dansa
 Á sunnudeginum borðaði ég hádegismat úti með fjölskyldu Mariu. Eftir það fór ég með Maria og Alberto í miðbæinn í rosa góðu veðri. Við byrjuðum á því að heimsækja Castello Sforzesco. Fyrir mörgum árum síðan, þegar Ítalía var ekki orðið eitt land, bjó kóngur Milano í kastalanum ásamt fylgdarliði sínu og listamönnum. Leonardo da Vinci var einn af listamönnunum sem bjó þar og vann fyrir kónginn.

Fyrir utan Castello Sforzesco

Þegar kóngurinn bjó í kastalanum var þetta fullt af vatni svo óvinirnir kæmust ekki inn, þarna var líka dýflissan.
Í dag eru mörg söfn inni í kastalanum og ég fékk að skoða nokkur þeirra. Ég skoðaði hljóðfærasafnið og safn með allskonar hlutum frá rómverska tímanum. Svo fékk ég að sjá herbergið þar sem Leonardo da Vinci bjó.

Herbergi Leonardo da Vinci

Gamalt píanó

Síðasta verk Michelangelo
Eftir að hafa skoðað kastalann löbbuðum við í stóran almenningsgarð sem var rosa flottur. Hann heitir Parco Sempione. Það var mjög mikið líf í garðinum. Mikið af tónlistarmönnum og garðurinn var allur fullur af fólki sem lá á teppi í grasinu og talaði saman, spilaði eða las bók. Það var mikið af hjólandi, gangandi og hlaupandi fólki. Mér fannst þetta mjög kósý!

Parco Sempione
Mikið, mikið af fólki!
 Á mánudeginum fór ég svo í skólann og á fyrsta ítölskunámskeiðið mitt eftir skóla. Það verður tvisvar í viku, tveir klukkutímar í einu, fram að jólum. Dagarnir mínir verða fullbókaðir örugglega þangað til að ég kem aftur heim. Það er sem sagt skóli alla daga nema sunnudaga, tveggja tíma ítölskunámskeið á mánudögum og miðvikudögum eftir skóla, ég er að fara að byrja í skólakórnum, á fimmtudaginn byrja ég í píanótímum í Yamaha tónlistarskólanum, í október byrja ég á myndlistarnámskeiði í Milano sem er strax eftir ítölskutíma á miðvikudögum. Einhvernveginn ætlaði ég að koma íþróttum inn í þessa dagskrá mína en ég veit ekki hvort það takist. Þannig að ég er að fara að gera allt hérna!

Mig langaði líka að segja ykkur frá garðinum. Hann er ótrúlega fallegur! Risa stór garður með fullt af allskonar trjátegundum og gönguleið um garðinn. Ég bý sem sagt í litlum skógi sem var einu sinni lengst út í sveit. Í þessum skógi býr amman í risastóru húsi ásamt tveimur bræðrum Mariu. Svo bý ég í tvíbýlishúsi, hinu megin býr systir Mariu og hennar fjölskylda.

Garðurinn fallegi
Svo langaði mig líka að segja, í dag keyrði Alberto mig um sveitirnar hérna í kring. Það er svo ólýsanlega fallegt!

Fallegt hérna í kring!

 Mig langar að setja ALLAR myndirnar hérna inn á síðuna en ég nenni því eiginlega ekki því það er mjög mikið vesen. Þannig að endilega skoðið myndirnar á Facebook, þær eru allar þar!

En nú er ég farin að sofa! Buona notte!



6 ummæli:

  1. Gabríela18.9.12

    Óvááá hvað það verður fyndið þegar þú kemur til baka með klút í vasanum til að snýta sér hressilega! Hressur þessi ensku kennari haha þú hlýtur þá að vera afburðar nemandi fyrst þú ert örugglega 90% betri í dönsku en allur skólinn? Rosalega gaman að heyra frá þér, og ekkert smá fallegar myndir! kveðja frá ÍSKÖLDU lofti!

    SvaraEyða
  2. Vááá ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt! :D
    Gaman að heyra hvað þú ert að gera og hvað þú hefur rosalega mikið að gera :D Rosalega flottar myndirnar líka hjá þér :)
    Hlakka til að fylgjast með þér :D
    - Hafrún

    SvaraEyða
  3. Gunnhildur19.9.12

    Hæhæ
    Skemmtilegt blogg og gaman að fylgjast með lífinu hjá þér. Njóttu lífsins.
    Kveðja
    Gunnhildur

    SvaraEyða
  4. Dagbjört19.9.12

    Svo gaman að lesa og vita hvað þú ert að gera, þetta er spennandi og þú stendur þig vel! Gott að hafa mikið að gera:)
    Bestu kveðjur frá okkur heima

    SvaraEyða
  5. amma Solla19.9.12

    Það er gaman að fylgjast með ævintýrinu þínu,mánuðirnir verða liðnir áður en þú veist af.

    KV.amma

    SvaraEyða
  6. Magga Ásgeirs20.9.12

    sæl Auður Katrín. Mikið er gaman að lesa bloggið þitt. Á örugglega eftir að kíkja oft inn hjá þér. Var í Milano í sumar og mikið ofsalega er það flott borg. Dómkirkjan heillandi.. nú og svo Prada og Chanel, ég keypti nú samt ekkert þar ;o)
    Og skóli á laugardögum eins og í gamla daga á Laugum, við mamma þín könnumst nú við það :o) njóttu lífsins mín kæra og komdu reynslunni ríkari heim. Kv. Magga (mömmu-vinkona)

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)