26.10.12

Lago di Como

Ciao!

Í dag er ég búin að vera hér á Ítalíu í 7 vikur og nú er sú áttunda að byrja. Nóvember byrjar í næstu viku, það eru 60 dagar í jólin og rúmlega átta mánuðir í að ég komi heim. Svo eru líka átta mánuðir í 18 ára afmælið mitt. Ég er næstum því búin með 2/10 af dvölinni. Þetta líf líður allt of hratt!

Ég ætla samt að byrja á því að afsaka ef ég geri stafsetningavillur, ég er orðin svo rugluð í tungumálunum að ég er jafnvel farin að búa til ný íslensk orð.

Ýmislegt hefur samt drifið á daga mína síðan ég skrifaði síðast! Dagarnir mínir hafa verið gjörsamlega fullbókaðir. Það hefur samt bara verið þetta venjulega: skóli, ítölskunámskeið, skólakór, píanótímar, söngtímar, yoga tímar, ræktin, myndlistartímar og AFS hittingar.

Við skiptinemarnir hérna í Milano erum alveg rosa góður hópur finnst mér. Alltaf mjög gaman hjá okkur og oft förum við eftir ítölskunámskeið út að borða, að kaupa ís eða á kaffihús. Svo eru hinir krakkarnir í Lombardiu mjög duglegir við það að koma til Milano og hittast. Við hittumst á föstudaginn, laugardaginn og svo erum við að fara að hittast á morgun.

Maria Andrea og Marine á kaffihúsi í miðbænum.

Á leið í ítölskutíma. Kakó og Duomo!

Fór með Marine út að borða, auðvitað fengum við okkur pizzu.

Í yndislegu veðri að bíða eftir lestinni.

Ég og Marine sitjandi síðasta föstudag í tröppunum framan við Duomo dómkirkjuna eftir AFS hitting. 

Milano er yndisleg borg!
Á sunnudeginum síðasta átti ég svo alveg yndislegan dag! Fósturfjölskylda Marine var svo frábær að bjóða mér með að skoða Lago di Como og ég get sko sagt að Como er einn fallegasti staður sem ég veit. Það var alveg ólýsanlega fallegt þarna. Við vorum líka svo ótrúlega heppin að fá gott veður. Lago di Como er sem sagt vatn hér í Lombardiu, alveg við landamærin rétt hjá Sviss. Vatnið er umkringt háum fjöllum með miklum gróðri og svo eru hús hér og þar í fjöllunum. Við byrjuðum á því að keyra í gegn um nokkra bæi þar til við komum að staðnum þar sem vatnið Lecco mætir vatninu Como. Þetta eru semsagt tvö vötn sem renna svo saman í eitt. Við fengum okkur hádegismat og tókum svo ferju yfir vatnið og í lítið þorp hinu megin við.

Fallega, fallega Como.

Við vatnið.

Á rosa kósý veitingastað.


Á leið í ferjuna.



Marine við fallega vatnið.


Litla þorpið hinu megin við vatnið var líka rosalega fallegt. Það var mikið af mjög krúttlegum mjóum götum, þetta var bara yndislegt!

Lítil og krúttleg gata í litla þorpinu.

Fallegt!

Við slepptum því ekkert að fá okkur ís.

og svo var þetta enn fallegra í alvörunni!





Þorpið.

Á leiðinni til baka.
Á miðvikudaginn síðasta í ítölskutíma átti Antonio, strákur frá Bólivíu, 18 ára afmæli. Það var svo sannarlega haldið upp á það og borðað köku í ítölskutímanum.

Súkkulaðikaka með súkkulaði, súkkulaðiís og vanilluís inní.

Afmælisbarnið!

Anna ítölskukennari. Hún er alveg yndisleg og ég mun sakna hennar svo
þegar við hættum í ítölskutímunum í janúar.

Eftir á var farið út að borða. Þarna eru Marine og Maria Andrea.

Ítalskt og gott!
Það er eitt alveg frábært hérna í Milano. Það er mikið af veitingastöðum þar sem þú borgar í kring um sjö evrur fyrir drykk og þá færðu mat með, sem er bara svona hlaðborð og þú getur borðað eins og þú vilt. Þetta er alveg mjög vinsælt hérna. Við fórum einmitt á svoleiðis stað á afmælinu hans Antonios.

Í gær, strax eftir skóla, tók ég lestina í miðbæinn og borðaði hádegismat með Marine og Pauline. Eftir á skoðuðum við í búðir. Klukkan fimm hittum við hina skiptinemana í Milano til þess að fara saman í háskóla þar sem við vorum með kynningu fyrir alla þá sem hafa áhuga á að fara út sem skiptinemar á næsta ári. Þar sögðum við frá sjálfum okkur á ítölsku og það gekk bara ótrúlega vel!

Pauline frá Norge!

Marine frá Californiu

Ég og Pauline :)
En það er nóg á dagskránni fyrir næstu vikur!

Á morgun eftir AFS hittinginn fer ég í afmæli til Marine. Þar ætlum við að borða með 15 öðrum krökkum, skiptinemum og fyrrverandi skiptinemum. Svo ætlum við að kíkja aðeins út og svo mun ég gista hjá Marine. Á sunnudaginn fer ég í eitthvað skemmtileikhús með familíunni. Á fimmtudaginn er 1. nóvember. Þá er frí í öllum skólum út af einhverjum ástæðum sem ég skil ekki, en það er alltaf frí 1. nóvember. Nokkrir skiptinemar ætla í Gardaland, sem er skemmtigarður, næstu helgi. Ég er ekki búin að ákveða hvort ég fari með eða ekki. Svo er fjölskyldan búin að bóka lestarferð til Rómar 27. desember! Hlakka rosa mikið til!

Hvað ítölskuna varðar þá held ég að ég hafi aldrei komið sjálfri mér jafn mikið á óvart. Ég tala núorðið eiginlega bara ítölsku. Á heimilinu er bara töluð ítalska og ég tala eiginlega alltaf ítölsku við skólafélaga mína. Svo tala ég ítölsku við þá skiptinema sem geta talað ítölsku.

Eftir að ég byrjaði að tala ítölsku hafa krakkarnir í skólanum verið mjög til í að spjalla við mig og loksins finnst mér ég vera komin í hópinn, eða allavega hálfa leið. Ég er samt enn ekki farin að skilja mikið í tímum, þar eru kennararnir að segja svo flókin orð.

Lífið hefur verið alveg ótrúlega ljúft við mig síðustu daga, og eiginlega bara allan tímann, þó ég sakni ykkar heima ávallt!

..og ef þið hafið tíma í að skrifa eitt orð í komment þá verð ég alveg rosa ánægð!

Kveðja frá Ítalíu.


16 ummæli:

  1. Glódís26.10.12

    Vá þetta hljómar ótrúlega spennandi! Skemmtu þér rosalega vel þarna úti :)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus26.10.12

    Það er svo gaman að lesa þetta blog! Besta bloggið (sorry Húnbogi ;D)
    Ohh manni líður nánast eins og maður sé á staðnum, þú lýsir öllu svo vel. Geðveikt að þú sért nánast komin með Ítölskuna á hreint.
    Farðu vel með þig og haltu áfram að hafa svona gaman <3
    Sóley Hulda

    SvaraEyða
  3. Patrycja Maria26.10.12

    úúú... svo ótrúlega dugleg elsku Auður ;** Þetta hljómar allt rosa spennandi og hefði ekkert á móti því að fara í svona Yoga tíma hjá þér þegar þú kemur tilbaka ... svo þarftu að gera svona súkkulaði súkkulaðis köku handa mér ! :D

    SvaraEyða
  4. Hjörvar26.10.12

    Frábært að lesa um allt sem þú ert að gera :)

    SvaraEyða
  5. Ekkert smá gaman að fylgjast með þér sæta! Gott að þú skemmtir þér :)

    SvaraEyða
  6. Kristrún Elva26.10.12

    Gaman að lesa hjá þér Auður Katrín, njóttu þín súper vel þarna úti, verður líka að skila kveðju á Daníel minn þarna úti :)
    Fylgist áfram með þér ;)

    SvaraEyða
    Svör
    1. Er að fara að hitta Daníel á morgun, mun skila góðri kveðju frá þér ;)

      Eyða
  7. Takk allir! Svo rosa gaman að fá svona komment frá ykkur hehe :)

    SvaraEyða
  8. amma Solla27.10.12

    Alltaf jafn gaman að lesa bloggið,ekki er ég hissa þó að þér finnist fallegt á Ítalíu,mér fannst undurfagurt þarna og á sko eftir að fara aftur,gott að þér líður vel og nýtur verunnar.

    Kv.amma

    SvaraEyða
  9. Sigurjón27.10.12

    Gaman að lesa bloggið, greinilega ýmislegt í gangi og fjölbreytt dagskrá. Flottar myndir frá Comovatni, þú hefur ekki séð George Clooney? Hann á víst villu við vatnið. Sjonni frændi

    SvaraEyða
    Svör
    1. Ég og Marine höfðum augun opin fyrir húsinu hans, en sáum ekkert. Það verður bara farin sérstök ferð næst til þess að finna hana!

      Eyða
  10. Ótrúlega skemmtilegir hlutir sem þú ert að upplyfa! haltu áfram að njóta þín ó botn ! :D

    SvaraEyða
  11. Pétur Smári28.10.12

    Rosa gaman að lesa þetta skemmtu þér vel.
    sakna þín mikið kveðja Pétur Smári :)

    SvaraEyða
    Svör
    1. ooo sakna þín líka! njóttu þess að vera prinsinn á heimilinu þar til ég kem!
      knús :)

      Eyða
  12. Búinn að lesa, alltaf jafn gaman að fylgjast með.
    Kv.
    Uppáhaldspabbinn þinn

    SvaraEyða
  13. Gabríela29.10.12

    Rosalega fallegar myndir hjá þér og mjög skemmtilegt að lesa það sem þú segir frá! lots of love! Gaby <3

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)