15.10.12

Six week camp!!

Ciao!

Sunnudaginn 7. október fór ég með fjölskyldunni að skoða enn eitt klaustrið hér í Milano, Abbazia di Chiaravalle. Það var mjög gaman að skoða það en það var dálítið öðruvísi en Abbazia di Morimondo því þetta klaustur er inni í Milano en ekki út fyrir borgina. Það var lítil hátíð í gangi og margt hægt að borða og skoða þarna! Margir básar með allskonar handgerðum og heimagerðum hlutum.

Garðurinn við Abbazia di Chiaravalle.

Kirkjan og mikið af fólki. 

Verið að grilla!

Svo var eitthvað svaka brúðkaup í gangi!

Fyrir utan kirkjuna.

Sulta.

Hluti af klaustrinu.

Síðustu dagar voru alveg klárlega lang skemmtilegustu dagarnir mínir hér á Ítalíu hingað til.

Frá fimmtudeginum 11. október til sunnudagsins 14. október var AFS með námskeið fyrir alla skiptinemana á mínu svæði, Lombardiu. Við vorum 68 krakkar sem gistum á gistiheimili mjög norðarlega á Ítalíu hjá ölpunum. Staðurinn heitir Val Masino og er pottþétt fallegasti staðurinn sem ég hef séð á Ítalíu hingað til. Val Masino er mjög lítill bær umkringdur mikilli náttúru og miklum fjöllum. Gistiheimilið var alveg frábært líka!

Marine á lestarstöðinni að bíða eftir rútunni.

Pauline frá Noregi, Antonio frá Bólivíu og ég.

Val Masino.

Útsýni frá garðinum við gistiheimilið.


Garðurinn!


Ég veit ekki hvar ég á að byrja! Þetta var bara svo gaman allan tímann! Þegar ég steig út úr rútunni í Val Masino leið mér eins og ég væri komin til Íslands. Það var ískalt og svo ferskt loft, ekki svona rakt eins og er í Milano. Þannig að loksins fékk ég að nota úlpuna mína! Ég var svo heppin að ég var bara með einni stelpu í herbergi en það var annað herbergi á gistiheimilinu þar sem 20 stelpur sváfu saman í.

Útsýnið úr glugganum í herberginu sem ég var í.
Noregur, Tæland, Kólombía, Ísland og USA að vera kúl.

Maturinn á gistiheimilinu var mjög góður og alltaf þriggja rétta. Ég var mjög ánægð með það en síðan ég kom til Ítalíu hef ég varla hugsað um annað en mat!

Allir að borða!
Pauline og stelpa frá Finnlandi.
Eftirmatur.
Andrea!
Það sem við gerðum á námskeiðinu var aðallega að tala um reynslu okkar hingað til. Við fórum líka í marga leiki  sem var mjög gaman og ég hitti mikið af öðrum skiptinemum sem var líka rosa gaman. Svo hitti ég hina þrjá Íslendingana sem eru hér í Lombardiu. Svo var auðvitað mjög gott að geta loksins talað íslensku, en samt var það pínu erfitt því ég er eiginlega farin að hugsa á ensku og ítölsku núna.

Þessi leikur snerist um að færa post-it miða á milli með munninum.
Finnst Can frá Tyrklandi svo fyndinn á þessari mynd!

Svo bökuðum við eplaköku með þessari yndislegu konu sem vann í eldhúsinu!

Allir að skrifa það fyrsta sem þeim dettur í hug um löndin í mínum hóp.

Þetta skrifuðu þau um Ísland, ekkert svo galið.

Emma frá Noregi að segja frá Noregi og hvað sé satt af því sem við skrifuðum.
Á laugardagskvöldinu var svo Talent Show! Það var alveg ótrúlega fyndið og skemmtilegt. Við frá Íslandi sungum og spiluðum á gítar Lífið er yndislegt. Svo eftir á létum við alla syngja Höfuð, herðar, hné og tær. Í lokin voru sjálfboðaliðarnir með atriði, leikrit og söng.

Ég og Andrea ekki með íslenska fánann þar sem ég kann bara ekki að teikna hann.

Amalia og Marine sætar!

Latnesku strákarnir!

Latneska fólkið.

Kína!

Nýja Sjáland og Suður Afríka!

Sjálfboðaliðarnir með voða dramatískt leikrit.

Við frá Íslandi að spila og syngja.


Um kvöldið var rosa gaman. Við vöktum mjög lengi, sátum úti með mörgum skiptinemum frá mörgum löndum og spiluðum og sungum. Við Íslendingarnir tókum svo Little Talks með Of Monsters and Men en alveg mjög margir þekkja þetta lag. Svo spiluðum við einhver fleiri lög líka. Þetta var bara ótrúlega gaman, veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessu. Ég kynntist mikið af nýju fólki, talaði mikið við hina skiptinemana og það var ekki sofið mjög mikið.

Það var mjög erfitt að fara aftur til Milano og þurfa að kveðja alla. Mig langaði að vera miklu lengur því þetta var bara svo gaman!! En núna tekur þetta dagsdaglega bara við sem er reyndar alveg mjög skemmtilegt.

Endilega skoðið myndir á Facebook. Ég setti þær allar inn þar.

Svo megiði auðvitað endilega kommenta alltaf þegar þið lesið. Mér finnst alveg rosa gaman að lesa það eins og þið vitið.

9 ummæli:

  1. Nafnlaus15.10.12

    Vá hvað þetta lýtur út fyrir að vera skemmtilegt! Svo glöð fyrir þína hönd að fá að upplifa þetta :D #öfund

    -Sóley Gibb systir

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus15.10.12

    Ætla að skilja eftir mig línu svo þú sjáir að ég fylgist með þessu skemmtilega ævintýri þínu:) njóttu í botn !

    Inda

    SvaraEyða
  3. þú ert svo að lifa lífinuuuuu!!
    Við Unnur öfundum þig ekkert smá mikið og erum alltaf svo spenntar þegar þú setur nýtt blog og þá er svona "family time" hjá okkur og ég les upphátt hvað þú ert að skrifa og við skoðum fínu myndirnar þínar :) Söknum þín voða voða mikið já.. lífið hérna er ekki eins án þín. og þú ert svo sæt, og falleg, og ég er að vera allt of væmin.
    En haltu bara áfram að habagamaaaan og liba lífinuuuu! :D
    Ps þetta er nýtt sem þú átt eftir að læra. þú ert að missa af öllu!

    SvaraEyða
    Svör
    1. æji þið eruð svo mikið sætar! ég er að habagaman og liba lífinu og kann þetta sko albeg þannig ég er ekki að missa ab neinu hehehe. sakna ykkar samt. sætu.

      Eyða
  4. Dagbjört16.10.12

    Það er ljóst að six week camp hefur "bara" verið skemmtilegt! Gaman að sjá allar þessar myndir.
    Hlakka svo til að heyra í þér næsta föstudag,
    knús frá mömmu mús :)

    SvaraEyða
  5. VÁÁÁÁ!!!! ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt og ég heyri að það hefur bara verið geðveikt hjá þér! sem er frábært! :D þú ert klárlega að upplyfa geðveika hluti þarna hinumegin :D Hlakka til að heyra meira frá þér :)

    SvaraEyða
  6. amma Solla.16.10.12

    Ennþá meira gaman að skoða myndirnar eftir veru mína á Ítalíu,undurfagurt þarna,langaði svo að hitta þig síðasta þriðjudag ,en ræningjarnir sáu til þess að svo varð ekki.Sé að þú hefur það gott og ert að njóta lífsins.

    KV.amma.

    SvaraEyða
  7. Pálmar frændi17.10.12

    Fylgjumst með þér úr Garðarbænum!

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)