5.11.12

Ecco novembre!

Ciao a tutti!!

Í dag fór ég ekki í skólann því ég er með smá hita, hálsbólgu, kvef og stærstu frunsu sem ég hef á ævinni fengið. Það er reyndar alveg ömurlegt að vera lasin í dag því það er svo gott veður. Þettaer svona veður eins og er á bestu sumardögunum á Íslandi. Í staðinn sit ég bara hérna fyrir framan tölvuna með galopinn gluggann og útsýni yfir garðinn. Sem er svo sem ágætt.

Á laugardeginum þarsíðasta hélt vinkona mín, Marine, uppá afmælið sitt. Eftir skóla þann dag fór ég niður í miðbæ Milano.

Ég og Marine versluðum aðeins í H&M og ég fann loksins skóna sem mig langaði í. Núna er ég reyndar með plástra á báðum hælunum út af hælsæri. Ég er búin að þrjóskast til þess að labba í þessum skóm en það var mjög vont til að byrja með. Ég er samt nokkuð viss um að þeir séu að skána.

Eftir það fórum við að hitta nokkra aðra skiptinema sem voru í bænum. Svo fórum við, 15 krakkar, heim til Marine og borðuðum þar kvöldmat og spjölluðum saman.
Allir heima hjá Marine!




Um kvöldið fór ég svo með Marine, fóstursystur hennar og vini hennar á ítalskt diskó! Þetta kvöld gisti ég heima hjá Marine. Við skemmtum okkur mjög vel, og fallega auðvitað eins og alltaf.

Jessica og Marine

Alice, Marine og ég á Lime Light
Daginn eftir fór ég í leikhús með fjölskyldunni. Leikhúsið heitir Piccolo Teatro. Nú er ég búin að fara tvisvar í leikhús hérna á Ítalíu og það hefur verið í bæði skiptin eitthvað allt öðruvísi en ég hef séð. Fyrst fór ég í Scala og sá óperuleikrit. Í Piccolo Teatro var rússneskur leikarahópur með trúðaleiksýningu. Það var ekkert talað í leikritinu heldur var þetta meira eins og látbragðsleikur. Það byrjaði reyndar á því að það var lítill trúður sem ætlaði að fyrirfara sér. Það var frekar óhugnalegt og ég vissi ekki hverskonar leiksýningu ég væri eiginlega að fara að sjá. En eftir allt var þetta mjög fyndin og skemmtileg sýning.

Þetta eru trúðarnir. Þeir hentu fullt af rusli yfir áhorfendur og sprautuðu vatni á þá.

Í lokin hentu trúðarnir risablöðrum yfir salinn og einhverju drasli sem líktist kóngulóavef.

Sofia og ég eftir leiksýninguna.
Á fimmtudeginum síðasta var hinn merkilegi 1. nóvember. Þá fengu allir frí í skólanum. Ég hef ekki hugmynd um afhverju það var frí þennan dag en ég held að það tengist eitthvað Halloween. Svo fengu allir skólar líka frí á föstudeginum og laugardeginum nema auðvitað minn skóli.

En þennan fimmtudag vaknaði ég klukkan átta og fór með fjölskyldunni í borg hérna nálægt sem heitir Mantova. Við vorum mjög heppin að fá gott veður og plús það var Mantova rosa falleg borg. Við fórum og skoðuðum gamla höll sem heitir Palazzo Ducale, eins og er svo vinsælt að gera hér á Ítalíu. En málið er að fyrir mörgum árum síðan, þegar Ítalía var ekki sameinuð í eitt land, voru svo margir kóngar á Ítalíu. Það var kóngur einn kóngur yfir einu litlu svæði í kringum eina borg og þess vegna voru alveg fullt af kóngum bara hérna í Lombardiu. Í þessari höll, eins og öllum hinum, voru söfn. Alveg heill hellingur af svo svakalegum málverkum að ég bara trúði varla mínum eigin augum. Það voru svona 20 herbergi og öll máluð með myndum af fólki eða einhverju öðru og skorið út í loftinu. Mér finnst bara ótrúlegt að þetta sé hægt.

Á leiðinni til Mantova. Þetta var enn fallegra í alvörunni, eins og yfirleitt.

Áin Pó

Mikið af fallegum byggingum í Mantova, eins og á allri Ítalíu.

Eitt herbergið í Palazzo Ducale.


Eftir að hafa skoðað allt í höllinni röltum við aðeins um bæinn og enduðum á kósý veitingastað. Við fengum okkur þriggja rétta máltíð og ég hélt að ég myndi aldrei getað gengið framar eftir allan þennan mat.

Eftir forrétt, sem var pasta, fékk ég í fyrsta skipti í tvo mánuði fisk!

Eftirrétturinn var svo þessi svakalega súkkulaðikaka.
Þegar við gátum staðið upp úr sætunum okkar löbbuðum við að annarri höll, Palazzo Te, sem á að hafa verið sumarbústaður kóngsins. Nokkuð myndarlegur sumarbústaður verð ég að segja. Þessar hallir hérna eru alveg svakalegar verð ég að segja. Palazzo Ducale er 34.000 fermetrar. Palazzo Te var samt aðeins minni en mikið fallegri fannst mér.

Ég og Sofia fyrir utan Palazzo Te, sumarbústaðinn. 
Palazzo Te



Þetta var alveg yndislegur dagur!

Á laugardeginum síðasta átti Nicole, skiptinemi frá Bólivíu, afmæli. Við fórum tvær saman í moll og skoðuðum þar í búðir en keyptum ekkert, enda er ég að reyna að spara aðeins þar sem það er mjög auðvelt að missa sig í búðum hérna í Milano.

Í gær fór ég með fjölskyldunni í ítalskt jólahús sem selur jólaskraut og allt sem tengist jólunum. Komst alveg í smá jólaskap við það. Það entist nú samt ekki lengi þegar ég kom svo út úr jólahúsinu og sá engan snjó.



Þetta er eitthvað alveg sérítalskt jólaskraut. Margir á Ítalíu búa til líkan af öllu Jesúdæminu.
Fjölskyldan mín hefur ákveðið að sleppa því að fara dagsferð til Rómar 27. desember en í staðin ætlum við að fara til Rómar, vera í þrjá daga í byrjun janúar og gista á hóteli!

Svo þarf ég að fara að ákveða mig hvað ég ætla að gera fyrir skiptinemavikuna. Skiptinemavikan er í mars minnir mig. Þá veljum við einn stað á Ítalíu þar sem við munum búa hjá annarri fjölskyldu í eina viku. Þar sem ég er á norður Ítalíu langar mig að prufa að vera í suður Ítalíu. Suður Ítalía er víst allt öðruvísi. Ég er búin að vera að hugsa um Sardiníu eða jafnvel Sikiley. Megið endilega koma með einhverjar hugmyndir í komment!

Ég var líka alveg rosalega ánægð með það hvað ég fékk mörg komment á síðasta blogg. Alveg endilega haldið áfram að vera svona dugleg að kvitta, þó þið hafið kvittað oft áður :)

Ciao a tutti! 


4 ummæli:

  1. Dagbjört5.11.12

    Búin að lesa og upplifa með þér í huganum!
    Verður spennandi að fara til Rómar eftir áramót og spurning um að velja Sikiley í vikudvölinni ef það er hægt, verður samt að fara varlega þar mín kæra :)
    Knús og kveðja
    mamma

    SvaraEyða
  2. amma Solla5.11.12

    Kvitt,kvitt úr snjónum,

    elska þig,og hugsa mikið til þín.

    KV amma.

    SvaraEyða
  3. Það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með þér:)
    Mér finnst að þú ættir að velja Sikiley, en samt er Sardinía svo spennandi. GMG ég gæti ekki valið.
    Sakna þín ótrúlega mikið!:*
    -Tanja

    SvaraEyða
  4. Gaman að það gengur vel hjá þér!
    -Anna Karen ;)

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)