Þó að við höfum fengið snjó hérna um miðjan desember komst ég aldrei í jólaskap. Það er eiginlega þannig að ítölsku jólin eru ekki næstum því jafn hátíðleg og þau íslensku. Það er ekkert verið að baka margar sortir af smákökum, setja jólaseríur í gluggana, spila jólalög eða gefa stórfjölskyldunni jólagjafir. Það er engin Þorláksmessa og enginn aðfangadagur. Sumir Ítalir halda jólin þann 24. desember en aðrir þann 25. desember.
| Snjómesti dagurinn |
Ítölsku jólin eru svo voðalega frjálsleg eitthvað. Það er samt þrennt sem er alltaf gert um jólin hér á Ítalíu. Í fyrsta lagi er búið til líkan sem kallast Presepe. Ég er ekki alveg viss um hvað þetta á að vera en þarna eru styttur af Jesú og hans foreldrum, vitringunum þremur og einhverju svoleiðis.
| Presepe |
Svo er það Panettone. Það er sérstakt "dolce" fyrir jólin. Þetta er eiginlega mix af brauði og köku. Sagan segir að sá sem fann uppá Panettone hafi ruglað saman uppskrift af brauði og köku og úr hafi orðið Panettone. Það er alveg mjög sérstakt bragð af þessu og maður veit ekki alveg hvort maður á að búast við brauði eða köku þegar maður borðar þetta. Inní þessu geta svo verið ávextir. Inní því sem ég smakkaði voru rúsínur eða apríkósur minnir mig.
![]() |
| Panettone |
Og hvað haldiði að jólamaturinn sé? Nú auðvitað pasta. En þetta er alveg sérstakt pasta með kjöti inní og heitir Capellini. Capello þýðir hattur, capellino þýðir lítill hattur og þetta heitir Capellini því pastað lítur út eins og litlir hattar. Afar merkilegt. Á Þorláksmessu undirbjuggum við þetta jólapasta sem er búið til alveg frá grunni.
| Verið að hnoða degið sem er bara gert úr eggjum, vatni og hveiti. |
| Verið að fletja út. |
| Svo er kjötið sett ofaná, deginu flett yfir og skorið út. |
| Tilbúið í pottinn! |
Ég hef samt verið að gera ýmislegt í desember. Þann 8. desember fór ég með tveimur ítölskum vinkonum mínum og Pauline frá Noregi á risastóran markað sem er alltaf í desember ár hvert. Þar er seldur matur, allskonar handgerðir hlutir og fleira. Markaðnum er skipt niður í þrjá markaði sem eru svo skiptir niður í ótalmarga markaði.
Á einum stað voru bara markaðir frá stöðum á Ítalíu eins og Sikiley, Sardiníu, Napólí, Flórens, Feneyjum og fleira.
Á öðrum stað voru markaðir frá Evrópskum löndum, en þar var ekki Ísland. Ég er samt ekki hissa því ég efast um að einhver hefði áhuga á að kaupa svið, hrútspunga og sviðasultu.
Svo var markaður með mörkuðum frá allskonar löndum annarsstaðar úr heiminum. Þetta var svo stórt að við komumst nú ekki yfir allt en það var ótrúlega gaman að skoða það sem við komumst yfir.
| Mig minnir að þetta hafi verið Portúgal. |
| Bandaríkin |
Sama dag fórum við Pauline á lítinn markað annarsstaðar í Mílanó og skoðuðum okkur um þar. Skoðuðum reyndar garðinn rétt hjá miklu meira heldur en markaðinn sjálfan.
| Það var svo fallegt þarna. |
Þann 9. desember hittumst við sem búum í Lombardiu saman í Brescia til þess að taka þátt í hátíð sem heitir Santa Lucia. Þar klæddum við okkur í búninga og löbbuðum um bæinn og gáfum nammi og sungum eins og asnar.
| Daníel og ég. |
Þann 14. desember hittumst við krakkarnir í Mílanó og bökuðum eða elduðum eitthvað frá okkar landi og borðuðum saman. Ég bakaði Djöflakökuna úr Hagkaupskökubókinni. Þrátt fyrir að hafa ekki verið með hrærivél, þeytara eða vanilludropa þá varð kakan bara alveg ágæt og kláraðist á fimm mínútum.
| Rubia frá Malasíu og ég. |
| Ég og mín handhrærða kaka. |
Ég gat ekki hugsað mér laufabrauðslaus jól þannig að ég kenndi ítölunum, ásamt Marine frá Bandaríkjunum og Pauline frá Noregi, að búa til laufabrauð. Ég bjó til degið sjálf sem ég hef nú ekki gert áður en með leiðbeiningum frá ömmu Sollu þá tókst þetta nú allt saman ágætlega.
| Ég kenndi japanskri stelpu frá Bandaríkjunum að gera íslenskt laufabrauð á Ítalíu! |
Svo var ég svo ótrúlega ánægð þegar ég fékk pakka og allskonar dót frá Íslandi.
| Sending frá mömmu og pabba, ömmunum og öfunum og langömmu. |
| Svo kom sending frá Boggu frænku og fjölskyldu og þessar geðveikt góðu kökur! |
| Frá Boggu og fjölskyldu. |
| Pakkarnir sem ég pakkaði inn. |
Svo var þriggja daga frí í skólanum sem gerist nú ekki oft! Þá tóku við þrjú djammkvöld í röð (mamma ég var rosa stillt samt).
Fyrsta kvöldið fór ég og gisti hjá Marine. Við fórum í 18 ára afmæli hjá strák sem ég þekki bara ekki neitt og við vissum ekkert hver ætti afmæli í þessu partýi. Eftir það fórum við á skemmtistað sem heitir Tropicana. Ég kom heim með sprungna vör þökk sé þessum ítölum sem dansa eins og asnar.
Annað kvöldið fór ég út með vinkonu minni Noemi og tveimur strákum. Þau ætluðu að sýna mér hvað ítalir gerðu í raun og veru um helgar. Við fórum á lítinn pub sem var svo lítill að það sást varla að þetta væri pub. Við sátum þar og spjölluðum saman heillengi. Tónlistin þar var alveg geðveik. Ég hélt samt að ég myndi verða geðveik þegar Noemi sagðist ekki þekkja lögin Stairway to Heaven með Led Zeppelin og Yesterday með Bítlunum.
Eftir það keyrðum við í eitthvað pínulítið úthverfi þar sem enginn var. Svo sá ég pínulítið op á svartri hurð og slatta af fólki fyrir framan. Við fórum þangað og máttum alls ekki hafa hátt. Ég vissi ekki hvað væri í gangi en það leit allt út fyrir að maðurinn sem var bakvið þessa hurð og sást í þessu pínulitla opi væri að selja dóp. Við fórum svo í röðina. Þá komst ég að því að maðurinn var að selja crossant með Nutella inní (brauð með súkkulaði inní fyrir þá sem ekki vita) ólöglega! Þarna kostar eitt stykki bara eina evru en yfirleitt kostar þetta um fjórar evrur. Við keyptum þarna af honum fjögur crossant og þegar við vorum búin að borga, lokaði gæjinn opinu og hurðin leit út fyrir að vera bara venjuleg hurð með engu opi. Þetta fór allt fram mjög leynilega.
Þriðja kvöldið fór ég svo í 18 ára afmæli hjá vinkonu minni. Hún leigði bar sem bauð uppá mat og drykki. Það frábæra við Ítalíu er að það er mikið af stöðum sem eru með "aperitivo". Það virkar þannig að þú ferð inná bar, borgar um sjö evrur fyrir einn drykk og svo er hlaðborð með allskonar mat sem þú getur borðað eins mikið og þú vilt af. Vinkona mín sem átti afmæli leigði einmitt svoleiðis bar.
| Ég með vinkonum mínum. |
Svo tók við skóli til 22. desember. Þann dag vorum við með lítið partý í skólanum. Borðuðum bara kökur og gerðum eitthvað skemmtilegt.
| Ég og stelpurnar í bekknum. Það vantar samt eina stelpuna. |
| Ég og Sofia. |
Svo þann 22. desember fór ég í einhverja svakalega húðhreinsun sem tók hvorki meira né minna en tvo og hálfan tíma! Það voru settir á mig svona fimm maskar og ég veit ekki hvað og hvað.
Við héldum jólin þann 25. desember og það var bara þessi eini dagur sem var tileinkaður jólunum. Mér til mikillar gleði var ég vakin klukkan 10 um morguninn til þess að taka upp jólagjafir. Svo fór dagurinn í undirbúning fyrir stóru veisluna sem var í þessu tilfelli haldin heima hjá mér. Þar kemur öll stórfjölskyldan saman og borðar.
Ég verð samt að segja að ég gat ekki verið lengi í einu meðal allra ítalanna. Þeir tala svo ótrúlega hátt og það eru alltaf svo mikil læti!
Ég komst yfir forréttina (sem voru þrír!!) en þá gat ég ekki borðað meira og komst því miður ekki yfir það að borða aðalréttina og eftirréttina.
| Allir að syngja. |
Jólafríið hefur aðallega farið í að gera ekki neitt. Bara afslöppun. Ég hef komist aðeins áfram með olíumálverkið mitt, samt samkvæmt minni fullkomnunaráráttu þá er margt margt eftir.
Á morgun fer ég í áramótapartý hjá vinum mínum og gisti þar. Svo fer ég til Rómar 2. janúar og verð þar til 4. janúar. Þá fer nú aldeilis að líða á seinni hlutann.
Þetta verður því seinasta bloggið á þessu ári. Næst mun ég skrifa eitthvað skemmtilegt um Róm. Haldið endilega áfram að vera svona dugleg að kommenta, þá nenni ég miklu frekar að skrifa eitthvað fyrir ykkur. En þangað til næst.
Gleðilegt nýtt ár!!
| Duomo 29.12.12 |

"Ég vissi ekki hvað væri í gangi en það leit allt út fyrir að maðurinn sem var bakvið þessa hurð og sást í þessu pínulitla opi væri að selja dóp. Við fórum svo í röðina. Þá komst ég að því að maðurinn var að selja crossant með Nutella inní"
SvaraEyðaÉG DÓ! HAHAHA
En gott að þú ert að skemmta þér og ég vona svo innilega að þú fáir jólapakkann þinn á endanum úr pósti frá okkur Viktoríu :D
Get ekki beðið eftir næsta bloggi! :*
Að lesa bloggið þitt er svo gaman og framandi. Plíís ekki hætta! Þetta með nutella crossant-ið var æðislegt og "Ég kenndi japanskri stelpu frá Bandaríkjunum að gera íslenskt laufabrauð á Ítalíu!" það er ekkert annað! :D Gleðilegt nýtt ár og ekki slasaði meira í áramótapartýinu ;)
SvaraEyðaVúhú! Loksins kom langþráð blogg frá þér sætust! Ps. Eins gott að þú hagir þér á djamminu þarna í Ítalíu annars er mér að mæta. Og feis á sprungnu vörina þína hahah! Elska þig, gleðileg jól og farsælt komandi ár gullið mitt. Hafðu það yndislegt og ég get ekki beðið eftir næsta bloggi! Love
SvaraEyðaAlltaf jafn gaman að lesa,hvernig er það elskan er bara alltaf partý?gakktu hægt en örugglega um gleðinnar dyr.Gott að þú gast kennt Ítölum að búa til laufabrauð,Nú er stórhríð hér ,en vonandi komast Reykdælingar í kvoldmatinn.Gleðilegt nýtt ár TAKK FYRIR GAMLA,hlakka til að hitta þig eftir örfáa mánuði.
SvaraEyðaKNÚS,KNÚS
amma Solla
Alltaf jafn gaman að fræðast um dvölina þína á Ítalíu! Snilldar gæji að selja nutella croissant leynilega og ólöglega hahah! Það er búið að vera ógeðslegt veður hérna, 41 m/s á kjalarnesi ekki enn viss hvort ég lifði það af hehe, sjæse.. en elska þig Ausa mín hlakka svo til að fá að hitta þig ítalinn minn <3
SvaraEyðaGLEÐILEGT NÝTT ÁR love Gaby!