Þegar upp er staðið eru það litlu hlutirnir sem sá sem flytur í annað land þarf að venjast. Menningarmunurinn er oft meiri en maður myndi halda þar sem hann felst aðallega í öllum þessum smáu hlutum í daglegu lífi. Sá sem flytur í annað land þarf að þróa með sér ákveðið hugarfar, sem er ekki alltaf auðvelt. Þó að Ítalía sé nú í Evrópu eins og Íslandið góða, þá felst oft mikill menningarmunur í litlum hlutum.
Eins og gengur og gerist þá fá Ítalir kvef, alveg eins og við Íslendingar. Nema hvað, aldrei kemst ég í gegn um daginn minn án þess að heyra einhvern snýta sér svo hressilega að mig hryllir við því. Ítalir snýta sér daginn út og daginn inn. Hvar sem ég er og hvert sem ég fer! Himinn og jörð ferst ef einhver hefur ekki snýtibréf með sér í för hvert sem sá sami fer. Þá er lýst yfir neyðarástandi: „ER EINHVER MEÐ SNÝTIBRÉF?!“. Ég sit kannski í skólanum að læra í rólegheitunum þegar ég hrekk upp við þessi voðalegu hljóð. En íþróttatímarnir. Auðvitað lætur enginn sjá sig spila körfubolta án þess að vera með svo sem eitt snýtibréf í vasanum. En það sem fer nú alveg með mig er þegar við sitjum við matarborðið. Þá er ekkert eðlilegra en að snýta sér dálítið hressilega. Svo er snýtibréfinu og öllu sem því fylgir bara stungið í vasann og haldið áfram að borða með bestu lyst. En athuga skal að það þykir afar ósmekklegt að sjúga upp í nefið. „Hættu að sjúga upp í nefið og snýttu þér stelpa!“ er eitthvað sem heyrist sennilega frá ófáum ítölskum mömmum.
Ítalir eru enn að nota svokallaða þérun á fullu. Ef þú talar við ókunnuga manneskju, gamalt fólk, kennara eða háttvirt fólk þá þarftu að ávarpa það í þriðju persónu auk þess að tala í formlegu máli, sem er í eitthvað svipuðu sniði og Alþingislögin eru skrifuð. Þegar maður er nýbyrjaður að skilja þá gengur það og gerist að maður fer að þýða allt úr ítölsku og yfir á sitt eigið tungumál þegar talað er. Þess vegna hljómaði alltaf í hausnum mínum í skólanum „Kennari, hafið þér búið til prófið sem okkur er ætlað að taka á mánudaginn?“ eða í matvöruverslun „Má bjóða yður poka?“. Svo er náttúrulega alveg stranglega bannað að segja „hæ“ eða „bæ“ við ókunnuga manneskju, gamalt fólk, kennara eða háttvirt fólk. Það var mjög erfitt í byrjun skólans þegar ég kunni litla sem enga ítölsku. Kennarinn má segja „hæ“ og „bæ“ við nemendur sína og má tala við þá án þess að nota þérun en nemendurnir þurfa alltaf að segja „góðan dag kennari“ og „verið þér sælir kennari“.
En hvernig er hægt að skilja þetta þegar maður er Íslendingur? Hvernig getur það þótt meiri kurteisi að snýta sér og geyma allt í vasanum? Það er kannski eitthvað sem maður á aldrei eftir að skilja ef maður hefur ekki alist upp við það. En hugarfarið sem maður þarf að tileinka sér í þessum efnum er að fyrir þeim er jafn eðlilegt að snýta sér eins og fyrir okkur Íslendinga að sjúga upp í nefið - og öfugt: fyrir þeim er jafn ógeðslegt að sjúga upp í nefið á almannafæri eins og fyrir okkur að snýta sér á almannafæri.
Með þérunina verður maður að hugsa sér að það að tala við kennara óformlega á Ítalíu er jafn asnalegt og ef einhverjum dytti í hug að nota þérun á kennara á Íslandi. Að segja „hæ“ við kennara er eins og að segja „hæ sæti“ eða „hæ sæta“ við kennara á Íslandi.
En svo ég fái nú aðeins að segja mína skoðun þá fer það ótrúlega í taugarnar á mér að fyrir fullorðnu fólki hér á Ítalíu er borin svo miklu meiri virðing heldur en fyrir ungu fólki. Þar sem ég er nú frekar réttindasinnuð í þessum málum þá getur þetta oft farið í taugarnar á mér. En ef talað er við mig í þérun, eins og út í búð eða á veitingastað, sem gerist annað slagið, þá geri ég það líka með glöðu geði og geng svo ánægð út!
En kæru lesendur. Nú fer að líða að því að ég sé búin að vera hér á Ítalíu í hálft ár, sem þýðir að það eru fjórir mánuðir eftir: þrír mánuðir eftir af skóla og svo mánaðar sumarfrí. Það er 1. mars á morgun sem ég trúi bara alls ekki. Svo er vorið er næstum alveg komið! Mikið er ég glöð. Það er farið að hlýna verulega og spáð 14 stiga hita og sól á mánudaginn næsta. Ég hef beðið lengi eftir þessu. Veturinn er búinn að vera kaldur og erfiður fyrir svona mikla kuldaskræfu eins og mig. Ég lýg því ekki að það kom fyrir þó nokkuð oft í viku þegar ég kom heim úr skólanum að ég klessti mig upp við ofninn í herberginu mínu í ullarsokkum og þykkri peysu. Oft fór ég líka svo mikið klædd undir sæng að reyna að hlýja mér. Minn aðal dvalarstaður í vetur var samt svo nálægt kamínunni að ég var heppin að það myndi ekki kvikna í mér.
Um daginn skellti ég mér í dagsferð í svissnesku Alpana með vinkonu minni frá Bólivíu. Það var virkilega gaman og væri sko ekki leiðinlegt að fara þangað aftur.
Svo er ég búin að kaupa mér miða á tónleika með FUN. Tónleikarnir verða 11. júní og eru útitónleikar. Það verður mjög gaman held ég þar sem það verður alveg hlýtt á kvöldin í júní.
Í gær afrekaði ég það að klára annað olíumálverkið mitt!
Annars einkennist líf mitt þessa dagana bara af kaffihúsaferðum, verslunarferðum, skóla, borða góðan mat, sofa og svo auðvitað mikilli gleði eins og alltaf! En undanfarna daga af kvefi og hálsbólgu sem er þó ekki jafn gleðilegt. En hafið ekki áhyggjur ég mun ekki taka upp á því að snýta mér í tíma og ótíma.
Smá skilaboð til pabba, Péturs Smára og afa: þó ég sé pínu abbó þá vona ég að þessi Englandsferð heppnist vel hjá ykkur. Látið svo heyra í ykkur á Old Trafford!
Ég yrði glöð að fá nokkrar athugasemdir frá ykkur kæru lesendur.
Ítalía kveður að sinni!




Hahaha skemmti mér alltaf jafn vel við það að lesa bloggin þín Auður Katrín! Er svo ánægð að þú sért að skemmta þér vel þarna úti og get svo ekki beðið eftir því að fá þig heim í sumar
SvaraEyðaKnúsar og kossar frá THE ICELAND
Heyr heyr! Get ekki verið meira sammála þér með þessa blessuðu "snýta-sér menningu" hún er líka hérna í Sviss!
SvaraEyðaVið matarborðið, í bíó, þegar fólk er lagst upp í rúm, á meðan horft er á sjónvarpið, í íþróttum og út um allt. Mér finnst þetta ógeðslegt en reyni að leiða þetta hjá mér! ;)
Gaman að lesa bloggið þitt Auður! :)
Mjög skemmtilegt blogg hjá þér og svo mikið til í þessu með "litlu hlutina"
SvaraEyðaHaltu áfram að njóta og hugsa sér.....bara fjórir mánuðir eftir!!
Bestu kveðjur úr einverunni
mamma
Alltaf gaman að lesa skrifin þín,ótrúlegt hvað tíminn líður hratt,njóttu hans þar til þú kemur heim,hann verður búin áður en þú veist af. það voru ánægðir karlar sem héldu af stað seinnipartinn á vit ævintýranna,en einnig kveðjur úr einverunni á Baughólnum eins og Reykjadalnum.
SvaraEyðaBæ,bæ,ekkert þér ,amma.
BÆ,BÆ ekkert þér amma.
Haha ég lærði þessa þérun í frönsku! Alveg sammála þér með að það sé meiri virðing borin fyrir eldra fólkinu á svona þérunar stöðum :) Ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt samt sem áður og hahaha ég hló yfir þessu snýta sér dæmi! Fleiri myndir næst fyrir Tönju sín :) Love you!! :*
SvaraEyða