25.9.12

Abbazia di Morimondo

Síðustu tíu dagar hafa liðið eins og tveir dagar. Það er búið að vera nóg að gera og ég er búin að eiga svo skemmtilega daga hérna!

Inn í þessa dagskrá mína, sem ég sagði frá í síðasta bloggi: skóli, skólakór, ítölskunámskeið, myndlistarnámskeið og píanótímar, hafa bæst við söngtímar, yogatímar og fitnesstímar. Ég fór í fyrsta skipti í ræktina í gær. Þar eru alltaf tveir þjálfarar sem búa til æfingarprógram handa öllum sem vilja og hjálpa til við æfingarnar. Það er ekkert smá þæginlegt en þetta er í rauninni bara eins og einkaþjálfun. Ég þurfti bara að segja þjálfurunum hvernig prógram ég vildi og þau redduðu öllu. Það eina sem ég þarf svo að gera er að gera það sem þau segja!

Á miðvikudaginn síðasta eftir ítölskunámskeiðið fór ég með öðrum skiptinema, Pauline frá Noregi, að skoða miðbæinn. Við ætluðum að reyna að versla eitthvað þar en það er sko erfiðara en fólk myndi halda. Ég hélt að ég myndi aldrei þurfa að segja þetta en það eru alltof margar búðir þarna! Allar troðfullar af fólki! Við enduðum því bara á því að fá okkur súkkulaðiís.

Ég og Pauline fyrir utan Prada.
Dómkirkjan, Duomo.
Fashion Week!
Með dómkirkjuna og kvöldsólina í baksýn.
Síðasta laugardag eftir skóla fór ég svo með Marine frá Californiu í betri verslunarferð. Þá keypti ég mér skó, peysu, hálsmen og svo auðvitað súkkulaðiís. Við keyptum okkur líka McDonalds eftir að hafa leitað af ódýrum veitingastað í svona klukkutíma. Í miðborginni er samt mikið af svertingjum sem eru að reyna að selja einhver drasl armbönd. Svo hlaupa þeir á eftir manni og reyna að setja armböndinn á mann og segja að þetta sé gjöf frá Afríku. Eftir á heimta þeir svo 50 cent og það vissum við Marine alveg mjög vel. Við höfðum beðið stelpu sem var að labba þarna fram hjá að taka mynd af okkur Marine saman við dómkirkjuna. Þegar hún var að taka myndina réðst einn svertinginn á okkur og setti þessi armbönd á okkur eiginlega án þess að við tókum eftir því. Svo sagði hann endalaust „this is a gift from Africa, it's a gift from Africa!“ og vildi fá að vera með á myndinni okkar. Þegar það var búið að taka myndina heimtaði hann svo auðvitað þessi 50 cent, sem hann fékk reyndar ekki.

Ég, Marine og svertinginn.

Hið langþráða ugluhálsmen.

Fyrsti McDonalds í þrjú ár! Hann var samt ekki jafn góður og mig minnti.
Sunnudagurinn var alveg yndislegur. Ég fór með fjölskyldunni og vinafólki þeirra í ferðalag í lítinn bæ sem er svona klukkutíma keyrsla frá Milano. Bærinn var mjög krúttlegur. Mikið af gömlum húsum og grónum görðum. Aðal tilgangurinn með ferðinni var samt að skoða risa stórt munkaklaustur, Abbazia di Morimondo. Það var alveg ótrúlega gaman að skoða það. Klaustrið er út í sveit á svo kyrrlátum stað og ég verð að segja að það var svo gott að koma aftur í kyrrðina í sveitinni. Við borðuðum svo á litlum útiveitingastað rétt hjá klaustrinu. Ég fékk mér heitt súkkulaði sem tók mig langan tíma að velja því það voru svona 30 súkkulaðitegundir í boði. 

Abbazia di Morimondo!



Með klaustrið í baksýn.
Klaustrið.

Útsýnið úr klaustrinu.
Í sveitinni, svo gott!
Í gær fór ég eftir ítölskunámskeiðið með öllum skiptinemunum tíu á besta ísstað í bænum. Starfsfólkið á þessum stað er reyndar ótrúlega dónalegt og leiðinlegt að það liggur við að ég sleppi því að fara þangað. En afþví þau selja góðan ís þá neyðist ég til þess að fara. 

Galleria.

Belgía, Noregur og Ísland.
Næsta sunnudag fer ég vonandi í dagsferð með fjölskyldunni að einhverju vatni og út á einhverja eyju hérna í Lombardiu. Það verður örugglega æðislegt því það á að vera mjög gott veður þann dag. Þann 1. ágúst eigum við miða á La Bohéme í fræga óperuleikhúsinu Scala. Fyrir þá sem ekki vita hvaða leikhús það er þá er það leikhúsið þar sem Pavarotti söng oft í. Þann 11. - 14. október fer ég á AFS námskeið með hinum skiptinemunum í Lombardiu sem ég hlakka mjög mikið til. Það er tveggja tíma lestarferðalag frá Milano og að fjöllunum hér í kring þar sem við gistum þessar þrjár nætur. Meira veit ég ekki. Svo í vetur fer ég kannski, bara kannski, til Sviss með fjölskyldunni í skíði! 

Okei, það sem hefur komið mér á óvart. Ég veit ekki hvort ég geti alhæft en svona er þetta í fjölskyldunni minni hér á Ítalíu. 

Ég hélt að Ísland væri svo frábært land að við værum eina þjóðin sem gæti drukkið vatn beint úr krananum, værum með hreint vatn í klósettinu og gætum verið í sturtu allan daginn undir heitu vatni! Það er bara ekki satt, ég get gert þetta allt hérna. Besta vatnið er reyndar úr krananum heima en þetta er ágætis vatn hérna. 

Ég er í skóm allan daginn. Útiskóm, inniskóm og baðskóm. Þau ganga aldrei um á sokkunum eða tásunum heima. Ég var reyndar að fatta að þetta er óvenju þæginlegt. 

Fjölskyldan mín leggur alltaf dúk á borðið áður en við borðum. Ef ég er ein að borða þá set ég lítinn dúk undir diskana mína. 

Ítalir kunna ekki að keyra. Ég veit ekki hversu auðvelt bílprófið þeirra er en ég hefði örugglega náð því villulaust án þess að lesa staf um umferðarreglur.

Ég varð eiginlega fyrir smá vonbrigðum með matinn og þá sérstaklega pizzurnar. Ítalir eru ekkert að setja skinku, pepperoni, hakk, beikon, ananas eða whatever á pizzurnar. Þeir setja salami, kál og eitthvað fáránlegt. Þess vegna verð ég að segja að Dalakofapizzurnar eru betri.

Ítalir borða ekkert svo voðalega mikið. Annað hvort það eða að ég borði mikið.

Hjá ítölum er pasta einn réttur, hrísgrjón einn réttur, grænmeti einn réttur og karteflur einn réttur. Þeir eru ekkert mikið í því að blanda þessu saman.

PABBI! Konurnar sjá ekkert bara um eldhúsið og húsverkin! Hér hjálpast allir að!

Ég gæti örugglega skrifað ýmislegt fleira, merkilegt og ómerkilegt, en ég ætla að láta þetta duga í bili. Þið sem hafið einhverjar áhyggjur af mér þurfið allavega ekki að hafa áhyggjur af því að mér leiðist og svona svo það sé alveg á hreinu þá er ég að hafa það svo ótrúlega gott hérna! Ég vona að þið séuð að hafa það jafn gott og ég!

Ég vil líka endilega fá komment frá ykkur hvort sem ég þekki ykkur mikið eða lítið og þó það sé ekki nema bara að segja hæ. Það er alltaf gaman að vita hverjir og hvað margir lesa! 


Ciao þangað til næst!

12 ummæli:

  1. Nafnlaus25.9.12

    Finnst ótrúlega gaman að lesa þetta hjá þér :D
    Hafðu það gott í Ítalíu !

    - Helena Sól

    SvaraEyða
  2. Sigurjón Jónsson25.9.12

    Gaman að lesa bloggið þitt frænka, finnst verst að hafa ekki komist í Pizzu í Dalakofanum í sumar...en það má nefna að hinn krítíski og kvörtunarglaði Jónas Kristjánsson (kannski neikvæðasti bloggari Íslands) var mjög ánægður með matinn hjá ykkur í Dalakofanum: http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=16850

    Sjonni frændi

    SvaraEyða
  3. Gabríela25.9.12

    mjög fyndið að lesa þetta með muninn (sem er skáletrað) fyndið að þeir gangi alltaf í skóm! hlakka til að fara eh tíman til ítalíu og smakka súkkulaðiís! :D Keep it up!

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus25.9.12

    Æðislega gaman að fylgjast með og lesa ;D
    Nóttu áfram!

    Ásta Soffía

    SvaraEyða
  5. Skemmtilega skrifað hjá þér stelpa og gaman að fylgjast með gangi mála hjá þér þarna.

    Ps. Vissi strax að þetta væri fín fjölskyla sem þú fékkst. Ítalíupabbi þinn duglegur í heimilisstörfunum og allt, alveg eins og.....

    SvaraEyða
    Svör
    1. Ha ha ha... ég verð þó að viðurkenna að þú hefur skánað með árunum!

      Eyða
  6. Unnur26.9.12

    Dalakofapizzur for the win! Verð alltaf svo ánægð þegar ég les bloggin þín :D en Auður Katrín, hefuru ekkert skánað með ís-átið frá því í sumar vinan??
    knús og kossar frá okkur Viktoríu og Unni ;** <3

    SvaraEyða
  7. Takk allir! Gaman að sjá hverjir lesa :)

    SvaraEyða
  8. Dagbjört26.9.12

    Elsku stelpan mín, alltaf gott að heyra að þér líði vel :) Njóttu vel því þetta er einstakt tækifæri!
    Mömmuknús

    SvaraEyða
  9. Ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt Auður og gaman að fylgjast með þér! ert að upplyfa ótrúlega skemmtilega hluti :D Hlakka til að fylgjast áfram með þér, og svo verður nú ekki leiðinlegt að hittast næsta sumar :D
    - Hafrún

    SvaraEyða
  10. Tinna Sól28.9.12

    Rosalega gaman að lesa hjá þér :D Fær mig til að langa út :)

    SvaraEyða
  11. amma Solla1.10.12

    Kvitt,kvitt,gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá þér Kannski hittumst við fljótlega,hver veit.

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)