Þá er ég búin að vera hér á Ítalíu í fimm daga!
![]() |
| Morguninn 7. september á Keflavíkurflugvelli |
Eftir að hafa sofið í fjóra tíma, vaknað klukkan hálf fjögur um nóttina til að fara út á Keflavíkurflugvöl, flogið til Berlínar, beðið þar í sjö klukkutíma með hinum 11 skiptinemunum, flogið til Rómar og lent rétt eftir miðnætti á staðartíma komst ég loks til Ítalíu!
Til að byrja með fórum við á komunámskeið ásamt öllum skiptinemunum sem ætla að vera á Ítalíu næstu tíu mánuðina. Í heildina eru um 470 skiptinemar á Ítalíu sem koma frá ýmsum löndum. Námskeiðið snerist um það að undirbúa okkur fyrir dvölina. Þar voru sjálfboðaliðar, fyrrverandi skiptinemar, sem sögðu okkur ýmislegt sem mun líklega nýtast okkur. Það var mjög gaman á þessu námskeiði þó ég hafi sennilega bara getað sofið í tíu tíma frá fimmtudegi til sunnudags því það var fullt prógramm allan tímann.
Það var hrikalega heitt í Róm. Alveg rosalega. Örugglega 35 gráður eða meira. Ég var í stuttbuxum og hlýrabol og ég hélt að það myndi kvikna í mér. Þá leið mér eins og sönnum Íslendingi.
Sunnudagsnóttina fékk ég að sofa í fjóra tíma því ég þurfti að leggja af stað til Milano klukkan sjö um morguninn. Það var ekki nema níu tíma rútuferðalag, mjög áhugavert. Við erum fjórir Íslendingar hérna í Lombardia, svæðið í kring um Milano.
![]() |
| Þarna er Milano |
Á endanum komumst við til Milano og ég fékk að hitta fósturfjölskylduna mína sem ég mun búa hjá í vetur. Þau búa í mjög fallegu húsi í úthverfi Milano sem heitir Rozzano. Húsið er í miðjunni á litlum skógi, mjög kósý. Foreldrar mínir hér eru Alberto og Maria. Ég á tvær systur. Önnur heitir Irene og er í Bandaríkjunum sem skiptinemi, hin heitir Sofia og er 11 ára.
![]() |
| Sæta húsið mitt! |
Fjölskyldan mín vill allt fyrir mig gera. Þegar ég kom hingað létu þau við mig eins og ég væri prinsessa. Það var gaman. Herbergið mitt er mjög fínt. Ég hef rúm, náttborð, skrifborð, tölvu, hljómborð, nylon strengja gítar, rafmagnsgítar (sem ég mun líklega ekkert spila á) og svo tók ég með mér elskulega gítarinn minn. Hann mátti ekki verða eftir.
![]() |
| Smá mynd af sæta |
Það tala allir hér mjög lélega ensku. Ég er búin að hitta einn ítala sem talar ágætis ensku og það er enskukennarinn minn. Fósturpabbi minn elskar að tala ensku. Hann er aðeins betri en fósturmamma mín en hann talar alls ekki góða ensku. Það fyndna er að hann er alltaf að leiðrétta fósturmömmu mína ef hún segir eitthvað vitlaust og ég hef alveg heyrt hann leiðrétta hana vitlaust. Jæja, það er hægt að hlægja af því. Hann er alveg súper hress. ALLTAF. Hann fer alltaf að sofa klukkan tíu á kvöldin og vaknar klukkan fimm á morgnana. Hann talar mjög mikið og grínast mjög mikið. Fósturmamma mín er aðeins rólegri en hún hlær alltaf jafn mikið af bröndurum hans. Matartímarnir eru mjög skemmtilegir. Fósturpabbi minn er alltaf með hálfgert leikrit á matartímum, með alla sína brandara.
| Hann sagðist vera besti pizzugerðarmaður í heimi. Hann var líka að reyna að líta út fyrir að vera mjög massaður á þessari mynd. |
Það má kannski telja konuna sem þrífur húsið með sem fjölskyldumeðlim. Hún kemur einu sinni í viku og þrífur allt húsið! Skúrar, ryksugar, býr um rúmin, þrífur klósettin, eldhúsið, nefndu það!
![]() |
| Svona fínt bjó hún um rúmið mitt! |
Okei, það sem ég er búin að borða: pasta, pasta, salat, pizza, salat, hamborgari, pasta, salat, pizza og pasta. Ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart. Og veðrið.. það er búið að vera yndislegt. Nema í dag var mikil rigning og þrumur og eldingar. Samt gaman.
Ég byrjaði svo í skólanum í dag. Ég held við séum 17 í bekknum, sex stelpur og 11 strákar! Þau eru öll mjög vinaleg og almennileg. Ég skildi ekki mikið en það hefur samt komið mér á óvart hvað ég skil alveg slatta í ítölsku og bara búin að vera hérna í fimm daga. Stundum næ ég alveg alveg heilum setningum. En bara stundum.
En þá er það bara næst á dagskrá að setja ítölskuna á fullt. Læra og læra og læra ný orð og reyna að hlusta og skilja! Þangað til næst, ciao!







Gaman að fá fréttir og myndir!Þetta verður bara gaman hjá þér!
SvaraEyðaBestu kveðjur
mamma, pabbi og Pétur Smári
Gaman að fylgjast með þér. Njóttu tímans á Ítalíu, hann verður mjög fljótur að líða. Bestu kveðjur
EyðaSvaka gaman að sjá myndir og lesa fréttir! Við áttum heima ekkert langt frá þessu.
SvaraEyðaP.s. Það er rosa góð bókabúð inni í borg, rétt hjá Cadorna lestarstöðinni, hún heitir American Bookstore ;) Stundum varð maður smá leiður á allri ítölskunni og vildi bara lesa á ensku sko :D
kv. Sylvía og synir
Æðislegt að geta fylgst með þér á þessari síðu,njóttu þess að vera þarna og kynnast nýrri menningu.
SvaraEyðaKnús af Baughólnum.
amma og afi.
Oooo þetta er svo spennandi!! Viltu skipta um líf? það er allt í snjó núna og ís kalt og skólinn er erfiður. Þú ert svo heppin. Það er æðislegt hvað fóstur fjölskyndan er hress og skemmtileg, hlakka til að sjá næsta blog hjá þér :D
SvaraEyðaPs. Við Unnur söknum þín agalega mikið <3
Ps 2 Máttu keyra í Ítalíu?
söknum þín mikiðmikið.. <3
Eyðasakna ykkar líka!
Eyðaohh hvað ég öfunda þig mikið.. langar svo að upplifa þetta aftur ! Skemmtu þér fallega :)
SvaraEyðaTakk allir! Gaman að sjá hverjir lesa :) en nei Viktoría ég má ekki keyra, og ef ég mætti það þá myndi ég aldrei leggja í það. Ítalir kunna EKKERT að keyra!
SvaraEyðaRosalega hljómar þetta spennandi! Gott að heyra hvað þú lentir á skemmtilegri fjölskyldu sem er almennileg, það er mjög mikilvægt! Vona að þú upplifir fullt fullt af ítalskri stemningu og að það gangi allt vel! Hlakka til að lesa meira frá þér Auður Katrín mín <3
SvaraEyðaYour one and only Gaby!