7.12.12

Tre mesi!

Í dag er ég búin að vera þrjá mánuði hérna á Ítalíu. Ég ætlaði að vera mjög dugleg að blogga, þrisvar sinnum í mánuði, en ég brást ykkur í seinasta mánuði. Ég hef bara ekkert frá neinu svaka spennandi að segja, allt er orðið svo hversdagslegt hérna. En samt mjög gaman.

Núna er ég í þriggja daga helgarfríi sem er mjög ánægjulegt! Fyrir þá sem ekki vita þá á ég yfirleitt bara sunnudaginn í helgarfrí, alltaf svo ótrúlega gaman að mæta í skólann á laugardögum.

Um daginn labbaði ég með Pauline í dýrustu verslunargötu Ítalíu. Þar eru búðir eins og Prada, Gucci, Armani, Calvin Klein, Dolce & Gabbana og margar fleiri skemmtilegar búðir. Við keyptum okkur nú samt ekkert í þessari ferð. 



Í lok nóvember kláraði ég teikniverkefni í skólanum.







































Flest kvöld sit ég framan við kamínuna og drekk te. Er ekki vön svona miklum kulda inni í húsunum. Það trúir enginn að ég sé frá Íslandi fyrst mér er alltaf kalt! 







































Síðasta sunnudag fórum við Marine heim til Pauline að baka piparkökur. Ég var ekki komin í neitt jólaskap en það kom smá jólafílingur þegar við fórum að baka.

Marine og ég

Fínar fínar piparkökur.

Pauline sæta.

Við að skreyta! 



































































































































Um daginn keypti ég miða á risa tónleika hérna í Mílanó, David Guetta. Það eru margir frægir tónlistarmenn búnir að koma hingað og eru að fara að koma eins og Lady GaGa, Bon Jovi, Of Monsters and Men og Sigurrós verður hér með tónleika í vor. Ég keypti tvo miða, einn fyrir mig og einn fyrir íslenska vinkonu mína, Selmu, sem býr í Bolzano. Hún ætlar að koma hingað í byrjun febrúar og vera yfir helgina sem tónleikarnir eru.

Miðarnir!







































Það er ótrúlega fallegt í miðbænum núna. Búið að setja upp jólatréið fyrir framan dómkirkjuna og ljós allstaðar. Ég er ekki enn komin með leið á því að labba um miðbæinn, alltaf jafn gaman.





Ég tók loksins mynd af því sem ég hef verið að gera í myndlistartímunum. Ég er að mála olíumálverk. Fyrst mála ég grunninn með akríl og svo mála ég með olíu ofan á. Grunnurinn er allur af sama lit þannig þegar ég verð búin með málverkið þá verður það miklu litríkara. Þegar ég tók myndina af málverkinu var ég bara byrjuð að mála himininn með olíulitunum.





Í gær var síðasti dagur í skólanum fyrir þessa þriggja daga helgi. Þegar ég mætti í skólann stóðu allir krakkarnir fyrir utan skólann og voru að mótmæla, enginn fór inn í skólann nema kennararnir. Við stóðum þarna úti til klukkan 8:30 (skólinn byrjar klukkan 8:10) en þá fengum við að fara í stóra salinn og vera með umræður um hverju við vildum breyta. Ef ég hef skilið þetta rétt þá er málið að skólarnir fá svo lítinn pening frá ríkinu og það er nýbúið að lækka þá upphæð sem skólarnir fengu alltaf. Þess vegna er allt það skemmtilega sem gert er í skólanum mjög takmarkað. Við sátum í salnum í um þrjá klukkutíma að ræða hlutina þar sem kennarar rifust við nemendur og allt brjálað. Svo fórum við bara í tíma og það verður umræðutími fyrstu tvo tímana í skólanum á fimmtudaginn.




Í dag komst ég svo loksins í almennilegt jólaskap. Ég bakaði jólakökur með systur minni í allan dag, við settum upp jólatréið og skreyttum en það sem toppaði allt var að það byrjaði að snjóa og nú er allt hvítt úti.

Mömmukökur








































En eins og ég sagði þá hef ég nú bara verið að gera þetta dagsdaglega undanfarið. Ég fór í síðasta söngtíman í gær, á mánudaginn er held ég síðasti ítölskutíminn fyrir jól. Ég sendi jólapakkana til Íslands í gær. Á morgun fer ég með vinum mínum að skoða eitthvað sem ég er ekki alveg viss um hvað er. Það eru markaðir í risa stóru húsi. Markaðirnir eru með allskonar vörur frá hinum ýmsu löndum. Svo ætla ég að kíkja í miðbæinn með Pauline. Við fórum ekki á skíði til Sviss í dag því það var ekki spáð mjög góðu veðri þannig að við ætlum að reyna að fara seinna, fljótlega.

Annars hef ég nú ekki frá meiru að segja. Hafið það gott á Íslandi! 
Ciao! 

5 ummæli:

  1. Þú ert svo mikil listakona!! Þvílíkt flott málverk og myndin er líka æði! Skemmtilegt blogg:) Bloggaðu meira!! Jájájájá

    SvaraEyða
  2. Dagbjört7.12.12

    Elsku stelpan mín, komin í jólaskap og búin að fá jólasnjó, það er nú gott að vita. Flottar mömmukökur hjá þér!
    Knús
    mamma

    SvaraEyða
  3. Amma Solla8.12.12

    Það er nú gaman fyrir þig að fá smá snjó,verður jólalegra við það,njóttu áfram verunnar í þessu fagra landi.

    KV. amma.

    SvaraEyða
  4. Gaman að lesa og glæsileg listaverkin! Þú ættir að vera í Liceo Artistico stelpa!

    SvaraEyða
  5. Sæl Auður Katrín, gott að lesa hvað allt gengur vel hjá þér. Mundu að njóta hverrar stundar. Nú fer skrýtinn tími í hönd hjá þér og líklega sá erfiðasti alla veru þína úti. En þetta hefst, mundu bara að vera ekki með hugann of mikið heima og hugsa um hvað fólkið þitt sé að gera. Njóttu ítalskara-jóla, það verður svo gaman seinna að geta sagt frá þeim og hafa samanburðinn, svo tekur þú jólin 2013 af tvöföldum krafti í Reykjadalnum. Hafðu það gott ljúfan kv. Magga (fyrrverandi skiptinema-mamma) ;o)

    SvaraEyða

Þeir sem eru ekki með aðgang að Gmail þurfa áður en þeir senda komment að fara í „Comment as:“, sem er fyrir neðan kommentboxið, og velja þar Name/URL. Þar er hægt að skrifa nafnið sitt í efri reitinn. Það þarf ekki að skrifa í neðri. Svo ýta á halda áfram og þá er hægt að kommenta! :)