Árið 2012 var gott ár og ég hef það mjög á tilfinningunni að árið 2013 verði alveg ótrúlega gott ár. Núna fer þetta nú allt saman að verða hálfnað. Ég veit ekki hvort ég eigi að trúa því eða ekki. Tíminn er búinn að líða hratt en á sama tíma hægt. Hægt aðallega vegna þess að ég er búin að gera svo marga hluti, hratt vegna þess að það er búið að vera gaman.
Jólafríið var algjörlega nýtt í afslöppun, þangað til um áramótin. Þá fór ég í áramótapartý með vinum mínum. Það er samt skemmtilegast að segja frá því þegar ég gisti þar með vinum mínum. Við vorum þrjár stelpur í einu herbergi.Við fengum bara eitt pínulítið rúm sem var ekki nógu breitt til þess að við gætum legið í því þrjár þannig við sváfum þvert yfir rúmið með fæturna útfyrir. Við fengum eitt pínu lítið og þunnt teppi sem náði ekki einu sinni yfir okkur allar. Og svo ég byrji nú ekki á því hvað það var ískalt þarna inni í þessu herbergi. Ég hef bara aldrei sofið í svona slæmum aðstæðum og svaf bara ekki neitt þessa nótt. Ég fann til allstaðar í líkamanum og mér var ískalt. Ítölsku vinkonur mínar sváfu samt alveg eins og englar. Þá áttaði ég mig á því að ég væri kannski aðeins of góðu vön.
![]() |
| Áramótapartýið |
Þann 2. - 4. janúar var ég í Róm. Róm er alveg klárlega fallegasta borg sem ég hef séð. Þar gistum við tvær nætur á mjög fínu hóteli.
Það sem er mjög skemmtilegt við Róm er það að hvert sem þú snýrð þér þá sérðu eitthvað merkilegt. Það er alveg ótrúlegt að standa í miðbænum og horfa á Colosseo, snúa sér svo og sjá Circus Maximus (eldgömul bygging frá Rómartímabilinu) og labba svo nokkur skref og sjá þá Foro Romano (gamlar leifar frá Rómartímabilinu). Ég man ekki betur en að á móti Foro Romano hafi verið einhver önnur bygging, en ég bara get engan veginn munað hvað hún heitir því það er alveg ómögulegt að leggja þetta allt saman á minnið. Fyrir mig allavega.
![]() |
| Colosseo |
![]() |
| Circus Maximus |
![]() |
| Foro Romano |
Það þyrfti margar margar vikur til þess að geta skoðað allt í Róm. Við vorum í þrjá daga en náðum að nýta þá mjög vel.
Daginn sem við komum fórum við á Verneer myndlistasýningu. Það var mjög fínt. Sama dag fór ég að skoða höll forsetans, fræga Trevi gosbrunnin og Pantheon.
![]() |
| Torgið fyrir framan höllina hjá forsetanum. Sést aðeins í Vatíkanið. |
![]() |
| Trevi gosbrunnurinn og ég súperhress. |
![]() |
| Pantheon |
Annan daginn skoðaði ég Colosseo, Vatíkanið og fleira ásamt því að vera eins túristaleg og ég gæti og taka túristarútu um Róm þar sem ég sat á toppnum á rútunni með ekkert þak. Það var svo mikið af fólki í bænum, enda allir í jólafríi, að það var ekki séns að ég nennti að bíða í þriggja tíma langri biðröð eftir að komast inní Colosseo eða aðrar byggingar. Ég ákvað því bara að skoða borgina vel í staðin og þekkja allt það helsta því næst þegar ég fer til Rómar get ég skoða allt betur og vonandi haft meiri tíma.
Það var alveg mjög skrítið að sjá Colosseo. Þetta er eitthvað sem maður hefur bara séð á myndum eða í bíómyndum og einhvernveginn alltaf verið eitthvað sem manni finnst að eigi BARA að vera á myndum eða í bíómyndum. Þessvegna er svo skrítið að sjá þetta svona raunverulegt.
![]() |
| Colosseo |
Svo fór ég að heilsa uppá Páfann í Vatíkaninu. Þar fórum við heldur ekki inn þó mig hefði langað mjög að sjá kirkjuna, en það verður bara að bíða til betri tíma.
Fólk kemur að heimsækja Vatíkanið af tveimur ólíkum ástæðum. Ein vegna þess að fólk er að ferðast og skoða sig um í Róm, eins og ég var að gera, eða þá að fara þangað útaf trúnni. Það ferðast margir trúaðir alla leið til Ítalíu bara til þess að fara í Vatíkanið og biðja. Ég sá til dæmis marga krjúpandi fyrir framan kirkjuna á torginu og biðja. Svo voru þarna margar nunnur. Það var eitt alveg stórfurðulegt sem ég komst að um nunnur. Ég var að skoða litla kirkju seinasta daginn. Í kirkjunni voru svo læstar dyr. Þar inni eru nunnur sem eru svo trúaðar að þær gera ekki annað en að borða og biðja. Þær fara ekki út úr kirkjunni og þær tala ekki við nokkurn mann, ekki einu sinni sín á milli. Ég get nú ekki trúað öðru en þær endi með því að verða geðveikar, ef þær voru það ekki fyrir. En hvað veit ég.
![]() |
| Við kirkjuna í Vatíkaninu. |
![]() |
| Á torginu við kirkjuna í Vatíkaninu. |
![]() |
| Fíni gosbrunnurinn í Vatíkaninu. |
Síðasta daginn tókum við túristarútu um sveitirnar fyrir utan Róm. Eins mikil sveitastelpa og ég er naut ég sko hverrar einustu sekúndu. Svo skoðuðum við nokkrar kirkjur og löbbuðum um í þessu fína veðri sem við vorum svo ótrúlega heppin með.
![]() |
| Mosé gosbrunnurinn |
Við gerðum margt margt fleira og ég varð alveg ástfangin af Róm. Ég ætla að setja hérna með nokkrar myndir úr Róm en annars eru þær allar á Facebook.
Ég vildi samt að ég gæti verið menningarlegri og fundist virkilega gaman að fara á söfn, skoða kirkjur og fara á myndlistasýningar. En rosalega getur mér fundist það leiðinlegt. Í vikunni fór ég á risa myndlistasýningu Picasso. Allir vita hver Picasso er þannig ég hélt að það gæti nú orðið áhugavert. Ef ég á að segja satt þá var ótrúlega þreytandi að labba í tvo eða þrjá klukkutíma um 16 herbergi, hvert með tíu myndum eftir Picasso í. En það er gaman að segja að ég hafi farið. Það var eitt málverk sem mér fannst gaman að sjá, en bara vegna þess að heima á Íslandi eigum við málverkið í litlum myndaramma og ég þekkti það.
Svo má ekki gleyma því að klukkan 8 á fyrsta degi útsalanna í Mílanó vaknaði ég og fór niður í bæ með Pauline. Það var sko ekki leiðinlegt. Enda hefur Mílanó breytt mér í kaupóða manneskju.
Svo fékk ég yndislega jólagjöf frá bestu vinkonunum í öllum heiminum.
Ég smakkaði japanskan mat í fyrsta skipti með japönsku vinkonu minni, Marine. Fórum eitt hádegið eftir skóla á japanskan veitingastað niðri í bæ.
Um helgina fór ég með vinum mínum á happy hour niðri í bæ því vinur minn átti afmæli. Daginn eftir var svo AFS hittingur þar sem við öll í Lombardiu hittumst.
Eftir tvo mánuði, 10. - 17. mars, verður skiptivika sem þýðir að ég get farið á annan stað á Ítalíu og verið þar í viku. Ég er að vonast til að fá að fara til Sikileyjar, syðsta part Ítalíu. Ég er búin að sækja um það og ég held að það líti allt út fyrir að ég fái að fara þangað.
Það er ekki meira að segja frá í bili, en nóg á dagskránni.
Munið bara að ég er að skrifa þetta sérstaklega fyrir ykkur og það er alltaf gaman að fá að vita hverjir hafa lesið.
Baci e abbracci til Íslandsins ♥





















Les alltaf,aftur og aftur,held að einhverjir lesi sem ekki kvitta,en gaman að fylgjast með hvað þú ert að upplifa.Nú fer að styttast í seinni hálfleikinn hjá þér,verður gaman að fá þig heim,reynslunni ríkari.
SvaraEyðaKnús frá afa úr stólnum góða.
AMMA
Æææ snilld þetta hjá þér Auður! og vá hvað Róm er flott!
SvaraEyðaÉg hefði ekki á móti því að fá að hafa svona skiptiviku hér eins og er hjá ykkur og bara vonandi að þú fáir að fara til syðsta hluta Ítalíu! :)
Mér finnst sko ekki leiðinlegt að skoða myndirnar sem þú postar á facebook! allt svo ótrúlega flott! :)
Hlakka til að lesa næsta blogg ;)
Enn og aftur, svo gaman að lesa bloggið þitt og myndirnar ! Váá ég er ekki hissa á því að þú hafir fallið fyrir Róm. Vonandi kemst þú til Sikileyjar :) Þetta er nú meiri upplifunin fyrir þig, jesús minn eini <3 Hlakka til að lesa næsta blogg :*
SvaraEyðaGaman að lesa bloggið. Smá öfund hérnamegin hehe skemmtu þér :)
SvaraEyðaGaman að lesa um ævintýri þín í Róm! Alveg mögnuð borg, Pantheon er ótrúleg bygging. Góða ferð inn í næsta ævintýri. -Sjonni
SvaraEyðaSvo gaman hjá þér, vona að þú komst til Sikileyjar!
SvaraEyðaelska þig ;*
Unnur
Endalus ævintýri hjá þér, hlakka til að fara með þér til Rómar! Mér þætti ekki leiðinlegt að komast á svona söfn og sjá t.d. Dora Maar eftir Picasso.....vá!
SvaraEyðaNjóttu vel og knús :)
mamma